21.04.1922
Sameinað þing: 10. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 312 í D-deild Alþingistíðinda. (1994)
52. mál, hin íslenska fálkaorða
Sveinn Ólafsson:
Jeg sje að vísu eftir þeim tíma, sem fer til að ræða þetta mál, og tel, að honum mætti verja betur. En jeg get þó eigi varist því að taka til máls, af því að jeg tel það miður fara, ef till. þessi verður samþykt, af þeirri ástæðu, að jeg lít svo á, að það væri bein móðgun við konung vorn.
Mjer þykir þetta í sjálfu sjer ekki mikilsvert mál eða merkilegt, og lít svo á, að betra hefði verið, að orða þessi hefði aldrei stofnuð verið, eða þá að veiting hennar hefði verið bundin strangari skilyrðum um verðleika þeirra, sem hana hljóta. En úr því, sem komið er, þá álít jeg eigi fært að leggja orðuna niður að sinni, enda ætti sú áhersla, sem lögð hefir verið á það, að veita ekki mikið af orðum, að draga úr veitingu þeirra eftirleiðis.
Það er rjett hjá hv. 1. þm. Skagf. (M. G.), að leyfi það, sem þingið gaf til að taka upp orðuna, var alls eigi bundið því skilyrði, að hún yrði aðeins veitt útlendum mönnum, þótt það á hinn bóginn væri aðalástæðan fyrir því, að hún var tekin upp, að hana mátti þá vel nota til að sæma útlenda Íslandsvini. En eins og sami hv. þm. (M. G.) tók fram, þá er tæpast hægt að bjóða útlendingum þá viðurkenningu, sem landsmenn vilja ekki nota sjálfir, og því hefði það verið fullkomin fjarstæða að ætla hana útlendingum einum. Mjer þætti því fyrir, ef till. þessi yrði samþykt. En álít betra að afgreiða málið með rökstuddri dagskrá heldur en að fella það eða samþykkja. Því hefir mjer komið til hugar að bera fram svohljóðandi rökstudda dagskrá:
Með því að fálkaorðan var upp tekin eftir leyfi meiri hluta Alþingis, þótt ýmsir mæltu því móti, og með því enn fremur að ætla má, eftir hugsunarhætti þjóðarinnar og áliti hennar á slíkum vegtyllumerkjum, að orðan verði eigi misbrúkuð, telur Alþingi ekki ástæðu til að samþykkja tillöguna og tekur fyrir næsta mál á dagskrá.