24.04.1922
Sameinað þing: 12. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 359 í D-deild Alþingistíðinda. (2015)
90. mál, landsverslunin
Atvinnumálaráðherra (Kl. J.):
Menn hafa lítið farið út í sögu þessa máls frá upphafi, og getur það máske stafað af því, að öllum sje hún svo ljós. En jeg leyfi mjer þó að efast um það. Hv. þm. Snæf. (H. St.) vjek þó lítið eitt að þessu í ræðu sinni. Hann sagði, að verslunin hefði verið algerlega ónauðsynleg til 1916, og aðeins tómt fálm og fimbulfamb út í loftið. Jeg leyfi mjer að mótmæla þessu. Eftir ófriðarbyrjun, í ágúst 1914, hjelt stjórnin fund með kaupmönnum og heildsölum hjer í bæ. Niðurstaðan af þeim fundi var sú, að kaupmenn treystu sjer ekki til að birgja landið að vörum, og því var nauðsynlegt að stjórnin hefði hjer hönd í bagga. Þá byrjaði landsverslunin. Tveir menn voru sendir til Ameríku til að kaupa þar hveitifarm, og þori jeg óhætt að fullyrða, að verslunin gerði þá strax stórmikið gagn. Hún var rekin beint frá stjórnarráðinu, meðan jeg var landritari, og bæði jeg og þáverandi skrifstofustjóri lögðum á okkur mikla aukavinnu við hana, án þess að fá eða hafa fengið einn einasta eyri að launum, að minsta kosti ekki jeg. Hún var því ekki kostnaðarsöm á þeim árum, landsverslunin. Vegna þessa alls vildi jeg ekki láta ómótmælt þeim orðum hv. þm. Snæf. (H. St.), að verslunin hefði ekki verið annað en kák og fimbulfamb.
Þegar till. á þskj. 269 og 270 eru bornar saman, þá liggur nærri, að manni virðist, að þær hefðu mátt vera samferða. Þótt í annari standi aðallega og í hinni eingöngu, þá er munurinn mjög lítill. Um niðurstöðuna hefði því átt að geta orðið samkomulag.
Þegar jeg las greinargerð meiri hl., þá verð jeg að segja það, að mjer finst hún að vísu ekki rituð með sjerlegum velvildarhug, en jeg get þó ekki sagt, að hún sje bein árás, en máske rjettast að segja, að hún sje lituð. En beri menn hana saman við ummæli sumra blaða, sem segja, að verslunin sje og hafi verið lands og lýða tjón, þá verður greinargerðin meinlaus og í sjálfu sjer í rauninni hreinn uppsláttur fyrir landsverslunina.
Þegar maður athugar álit beggja nefndahluta, þá kemur það í ljós, að það er furðumargt, sem menn eru samdóma um í þessu máli. Þannig eru allir sammála um það, að eigi dugi að hætta landsversluninni alt í einu, og að eigi beri að kalla eftir útistandandi skuldum alt í einu, því að það yrði viðskiftamönnum verslunarinnar hið mesta tjón. Dugir því ekki að ganga of fljótt og of hart að mönnum. Álít jeg því, að landsverslunin verði að standa áfram sem slík fyrst um sinn, að minsta kosti til næsta þings, og því naumast rjett að binda alveg hendur stjórnarinnar þann tíma. Sjerstaklega mundi kaupmannastjettin líða við það, ef hart væri gengið að mönnum. Enda þótt kaupmannastjettinni sje ekki vel við landsverslunina, þá hefir hún þó notað hana mikið, því að eftir greinargerð meiri hluta nefndarinnar skulda kaupmenn henni tæpa 1 miljón kr., nálega eins mikið og Samband íslenskra samvinnufjelaga og önnur kaupfjelög skulda henni. Sýnir þetta ljóslega, að kaupmenn hafa eigi síður en Sambandið og kaupfjelögin notið góðs af versluninni og lánstrausts hennar. Jeg skal taka það fram vegna þess, sem fram kom í umræðunum um mál þetta hjer í deildinni í gær, að verslunin hefði sjerstaklega góða aðstöðu, þar sem hún hefði haft fje ríkissjóðs úr að spila, og auk þess sjerstök hlunnindi hvað yfirfærslu á peningum snertir, sem sje þau, að Landsbankinn hafi ávalt verið boðinn og búinn til þess að yfirfæra fyrir hana. Sje það rjett, að hún hafi notið slíkrar aðstöðu, þá er það vitanlegt, að það hefir einnig komið þeim að góðu, sem skulda versluninni stórfje, sem sje kaupmönnum.
Annars finst mjer það gegna furðu, hversu mikinn kala margir kaupmenn bera til landsverslunarinnar, þar eð þeir hafa haft mikil not af gjaldfresti hennar og yfirfærslum.
Úr því að landsverslunin á að halda áfram, eins og allir eru sammála um — þótt eigi væri nema til þess að gera upp reikninga sína — þá hlýt jeg sem atvinnumálaráðherra að hallast að þeirri till., sem rýmri er, og jeg tel sjálfsagt, að eigi væri útilokað að kaupa fleiri vörur, ef um sjerstaka nauðsyn væri að ræða. Jeg mun því haga mjer eftir þessum þremur liðum beggja tillagna, sem eru nálega samhljóða orði til orðs, og ekki fara að gera nein ný innkaup, nema einhver knýjandi þörf lægi fyrir, t. a. m. að vissa væri orðin fyrir því, að einoka ætti einhverja vörutegund, eða jafnvel væri búið að því. Þá mundi jeg telja mjer skylt og heimilt, samkvæmt vilja þingsins, að koma í veg fyrir slíka einokun og láta landsverslunina kaupa vöruna og selja hana. Eða t. a. m. að kolalaust yrði, eins og í fyrra. Mjer er því í rauninni sama, hvor till. verður samþykt.
Hvað viðvíkur útistandandi skuldum verslunarinnar, hve miklar þær eru, og hvort þær sjeu tyggar eða eigi, þá vil jeg taka það fram, að um hið síðara mun mjög erfitt að dæma. En um upphæðina er það að segja, að jeg álít, að hún sje of hátt áætluð, 400–500 þús. kr., en þótt svo væri, þá væri það ekki svo ýkjamikið, þegar þess er gætt, að umsetning verslunarinnar hefir verið um 60 miljónir króna. Hefi jeg það frá forstjóra verslunarinnar.
Jeg held, að eigi sje ástæða til þess að fara ítarlegar út í greinargerðina, þar eð jeg þykist hafa skýrt greinilega afstöðu mína til málsins. En jeg vildi leyfa mjer að svara fyrirspurn hv. frsm. meiri hl. (Ó. P.) um það, hvort stjórnin hafi eigi í huga að rannsaka steinolíuverslun landsverslunarinnar, út af blaðagreinum, sem um hana hafa verið ritaðar, og út af erindi, er viðskiftanefnd hefir borist. Um það get jeg ekkert sagt sakir þess, að jeg hefi ekki sjeð erindið, og í greinargerð meiri hluta nefndarinnar er hvergi á það minst, svo að jeg hafði enga ástæðu til að búast við neinni fyrirspurn í þessa átt. Jeg hefi því enga afstöðu getað tekið um það atriði, sem eðlilegt er. Jeg hefi síðan í gær verið upptekinn við annað, eins og hv. þm. mun kunnugt, en blaðagreinarnar hefi jeg vitanlega lesið, eins og flestir hv. þm. munu og hafa gert, og er um þær greinar það að segja, að báðir málsaðiljar eru mætir menn, og er því ilt að trúa öðrum frekar en hinum. Hafa báðir sjálfsagt eitthvað til síns máls. Vona jeg því, að hv. frsm. (Ó. P.) lái mjer ekki, þó að jeg geti eigi svarað þessu allsendis óviðbúinn.
Jeg finn ekki ástæðu til að taka fleira fram að sinni, enda eru umr. um mál þetta orðnar fulllangar.