24.04.1922
Sameinað þing: 12. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 424 í D-deild Alþingistíðinda. (2037)

90. mál, landsverslunin

Jón Auðunn Jónsson:

Hv. 2. þm. Reykv. (J. B.) talaði alllengi um steinolíumálið, en þar vill nú svo vel til, að allir eru sammála um, að halda beri áfram að láta landsverslunina versla með hana.

Sami hv. þm. var hissa yfir því, að jeg skyldi vilja leggja landsverslunina niður, þar sem jeg sagði þó, að útistandandi skuldir hennar hefðu aukist lítið á árinu. En það kemur fleira til greina. Í fyrsta lagi var það vilji síðasta þings, að skuldir yrðu innheimtar og færðust því niður, en ykust ekki. Þá munu þessar skuldir yfirleitt miklum mun ver trygðar en í fyrra, og loks er allmikil hætta á tapi, ef haldið er áfram í sama far. Þetta eru alt gildar ástæður.

Þeir hv. þm., sem halda vilja landsversluninni áfram, hafa engin rök fært fyrir nauðsyninni fyr en nú, að hv. frsm. minni hl. (S. F.) kom með þrjár ástæður. Fyrst var sú, að nú væri hart í ári og menn skuldugir mjög, og því ekki heppilegt að ganga að þeim. Þetta tel jeg nú ekki næga ástæðu fyrir því að halda áfram að binda ríkisfje í skuldaverslun. Sú var önnur ástæðan, að landsverslunin gæti grætt, ef hún yrði ekki fyrir óhöppum. Jeg veit nú, að hún getur orðið fyrir óhöppum hjer eftir eins og hingað til, og eitt og stærsta fyrirsjáanlega óhappið er auknar útistandandi skuldir og verri og verri skuldastaðir. Þriðja ástæðan var sú, að hún þyrfti að halda vöruverði niðri, því að kaupmenn hækki jafnan verðið, ef lítið sje til fyrir af einhverri vörutegund. Þessi ástæða er rýr nú orðið. Nú er framboð á vörum orðið geysimikið erlendis og engin vandræði með aðflutninginn, en jeg veit, að þetta átti sjer stað þegar lítið var bæði um vörur og skipakost til aðdrátta. Nú held jeg, að fulltrygt sje að trúa heilbrigðri samkepni kaupmanna og kaupfjelaga fyrir því að halda verðinu niðri.

Aðrar ástæður en þessar hafa hv. meðhaldsmenn landsverslunarinnar hjer ekki látið uppi. Þykir mjer það furða, og hún því meiri, sem jeg bjóst við, að hv. þm. Ak. (M. K.), forstjóri landsverslunarinnar, kæmi með skýr rök og þung. En það virtist svo, sem reiðin hlypi með hann í gönur, því að hann vafði um höfuð sjer heilum poka af digurmælum og svigurmælum, svo að hann sá ekki rökin, enda munu þau svo ljett, að best sje að hætta þeim ekki í dagsljósið. Og svo ljet hann blindast, að hann beindi skeytunum harðast til þeirra, er ekki höfðu að honum skotið. Því fór svo, að hann ætlaði að þvo af sjer það, sem aðrir en jeg báru á hann, með því að bera landsverslunina saman við bankana. Jeg veit nú ekki til, að landsversluninni hafi verið ætlað að vera lánsstofnun, heldur heildverslun, er seldi sem ódýrast, en gegn greiðslu við móttöku, eða því sem næst. Það þarf engan að undra, þótt bankarnir tapi nokkru á slíkum árum sem þessum. Þeir eiga hvort sem er að vera lánsstofnanir og eiga sjerstaklega að styðja atvinnuvegina og mega því ekki ganga of hart að á erfiðum tímum. Þó hafa bankarnir áreiðanlega ekki tapað eins miklu og landsverslunin, hlutfallslega við verslunarveltu, þar sem hún mun nú hafa tapað 400 þús. kr. eða meiru, að dómi þeirra, sem verja hana best og því eðlilega vilja gera sem minst úr tapinu. Það virðist því, sem hæstv. forseti (M. K.), landsverslunarforstjórinn, hafi reiðst af því, að jeg kom með rök, sem hann gat ekki hrakið.

Þá þótti mjer skrítið, að hann (M. K.) sagði, að við, sem viljum láta landsverslunina hætta, bærum hag útlendra selstöðuverslana og gamallar einokunar fyrir brjósti. Hver af oss ætli mundi þó meta eina slíka verslun á við ¼ allrar kaupmannastjettar landsins? En það hefir nú forstjórinn sjálfur gert. Hann er enginn Skarphjeðinn, þótt digurt tali, og má hann nú sjálfum sjer um kenna, þótt svart sjáist í tönnum hans, og þann garnarenda mun honum erfitt burt að stanga úr tönnum sjer.

Mjer þótti gott að heyra þá yfirlýsingu, sem hæstv. atvrh. (Kl. J.) gaf, en sú yfirlýsing var gefin gagnvart þál.till., en ekki dagskrártill. hv. þm. Dala. (B. J.). Jeg mun því greiða atkv. móti dagskránni, en með þeirri till., sem er á þskj. 269.