03.04.1922
Neðri deild: 39. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 433 í D-deild Alþingistíðinda. (2051)

72. mál, prentunarkostnaður ríkissjóðs

Jón Baldvinsson:

Jeg vil vekja athygli hv. deildarmanna á því, að hjer er aðeins um það að ræða að fela stjórninni að rannsaka, hvort ekki væri heppilegt, að ríkið ætti prentsmiðju. Það sýnist því ekki ástæða að setja sig á móti þessum lið, úr því aðeins er um rannsókn að ræða, en alls ekki um hitt, að stjórnin skuli setja slíka prentsmiðju á fót.

Jeg hygg, að vel geti komið til mála, að ríkið setji prentsmiðju á stofn. Prentunarkostnaður ríkisins er talinn í greinargerð þessarar þál. 150 þús. kr., og jeg hygg, að hann sje nokkru hærri. En þessi upphæð, 150 þús. kr., mun vera nálægt því að vera meðalársumsetning prentsmiðju, að minsta kosti hinna smærri. Ætti því meðalprentsmiðja að hafa nægilegt að gera aðeins fyrir ríkið, og ekki þurfa að keppa við aðrar prentsmiðjur, eins og hv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.) hjelt fram.

Það er að vísu satt, að nokkuð mikið af prentun fyrir ríkið kemur á einn árshluta, en þó hygg jeg, að meira mætti jafna því niður, þannig, að prentsmiðjan hefði eitthvað að starfa alt árið. Jeg hygg því alls ekki fráleitt, að þessi prentsmiðja komist á fót, og síst sje jeg ástæðu til þess að snúast á móti því, að stjórnin rannsaki það mál.