11.04.1922
Neðri deild: 46. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 450 í D-deild Alþingistíðinda. (2083)

85. mál, endurskoðun fátækralaga

Atvinnumálaráðherra (Kl. J.):

Svar mitt verður stutt, en þykir máske ekki að sama skapi laggott.

Fyrverandi landsstjórn hefir ekkert gert í málinu, og orsökin til þess kvað vera sú, að fyrv. atvrh. (P. J.) áleit óþarft, eftir reynslu sinni og þekkingu á fátækramálum, að sinna þál., en hvers vegna stjórnin hefir ekkert svar gefið, er mjer ókunnugt, en jeg geri ráð fyrir því, að stjórnin hafi þóst á árunum 1917–1919 hafa annað þýðingarmeira að fást við en þetta mál. En þótt stjórnin hafi ekkert viljað sinna þál., var samt sjálfsagt af henni að skýra frá því, hvers vegna hún vildi það ekki.

Jeg minnist þess, að á hinum ráðgefandi þingum vorum var það mjög títt, að þm. fóru fram á það að fá ýmsar breytingar á löggjöfinni eða stjórnarfyrirkomulagi. Var þessum beiðnum oft, jafnvel venjulega, neitað, en svo mikla kurteisi sýndi stjórnin þó, að hún svaraði þeim altaf, og sama tel jeg sjálfsagt enn að stjórnin geri; það má ekki minna vera, og því skal jeg lofa, að þótt stjórnin sjái sjer ekki fært að taka málið til greina, þá skal hún samt gefa svar, hvers vegna hún gerir það ekki. En nú skal jeg snúa mjer að efni málsins.

Kemur þá fyrst sú spurning til athugunar, hvort þörf sje á breytingunni. Lögin eru tiltölulega ung, en auðvitað er nýjum lögum oft breytt fljótlega, en þessi lög eru líka ágætlega undirbúin, svo vel, að jeg efast um, að mörg önnur lög hafi fengið betri undirbúning. Í milliþinganefndinni, er samdi lögin, átti sæti mjög glöggur lögfræðingur, með margra ára „praktiska“ reynslu, og auk þess 2 menn aðrir, sem um tugi ára höfðu haft kynni af þessum málum. Og eftir að nefndin lauk störfum sínum, fjallaði þáverandi ráðherra og jeg, sem báðir höfðum líka margra ára þekkingu á fátækramálum, um þau og höfðum mjög lítið að athuga við hvortveggja lögin, fátækralögin og sveitarstjórnarlögin. Svo að hafi nokkur lög fengið góðan undirbúning, þá hafa þessi lög fengið það.

Mjer hefir ekki heldur verið kunnugt um, að mikil óánægja hafi verið með þau, og átti jeg þó að leggja síðasta úrskurð á þessi mál öll árin frá 1905–1917, og hafði því náin kynni af þeim öll þessi ár. Helst varð jeg var við óánægju um sveitfestistímann. Það er auðvitað, að altaf verður álitamál um hann, hversu langur hann á að vera, hvort heldur 2, 5 eða 10 ár, eða enda lengri. Sennilegt er það, að því styttri sem tíminn er, því minni hætta sje á því, að hreppsnefndir reyni að bola mönnum burtu. Líklega væri það heppilegast, og vafalaust væri það umsvifaminst, að sveitfestin færi eftir dvalarsveitinni, en þar við er að athuga, að það mundi koma mjög hart niður á kaupstöðunum og sjávarþorpum, á meðan sveitarstjórnum er ekki gert mögulegt að takmarka innflutninginn. En það vitlausasta af öllu er, að sveitfestin sje bundin við fæðingarhreppinn. Veit jeg dæmi þess, að maður fluttist tveggja nátta gamall úr fæðingarhreppi sínum, en kom svo á hann eftir 40 ár, algerlega framandi og án þess að eiga þar nokkra ættingja. Minnist jeg þess í þessu sambandi, að Magnús gamli konferensráð hjelt því fram sem heppilegustu, að sveitfestin væri miðuð við, hvar maðurinn hefði dvalið lengst að öllu samanlögðu, á meðan hann gat unnið fyrir sjer. Er góð meining í þessu, að maðurinn njóti þaðan styrks, sem hann hefir útslitið kröftum sínum. En annars er þetta mjög flókið mál og vert þess, að það sje vel rannsakað.

Jeg er ekki sammála hv. fyrirspyrjanda um það, að lengja eigi frestinn samkv. 66. gr. fátækralaganna. Álít jeg þá grein góða eins og hún er. Veit jeg, að það vakir fyrir hv. þm. (H. K.), að oft sje erfitt að ná í skýrslu þá, sem krafist er samkvæmt 64. gr. laganna, en auk þess, sem þetta er næsta auðvelt, mundi kröfurjetturinn alls ekki tapast, þótt skýrslan væri ekki sem fullkomnust, ef tilkynt hefir verið í tæka tíð, að styrkur hafi verið veittur, og það er hægt að gera með nokkrum línum.

Þess vegna get jeg ekki lofað hv. flm. (H. K.) að taka þann lið þál. til greina, að fresturinn samkv. 66. gr. laganna verði lengdur.

Annars get jeg sagt það, að af þessum till. í þál. frá 1917 legg jeg langmesta áherslu á fyrstu tillöguna, að sá styrkur, sem sveitar- eða bæjarsjóðir veita mönnum vegna ómegðar, sjúkdóma, slysa eða elli, verði ekki látinn varða missi borgaralegra rjettinda. Jeg er alveg sannfærður um, að það er rangt að svifta þá menn borgaralegum rjettindum, sem leita til sveitar af ósjálfráðum ástæðum. En það er dálítið erfitt að skera úr því, hvað er sjálfrátt og hvað ósjálfrátt, svo að fullkomlega rjettlátt sje. En svo er stjórnarskráin til fyrirstöðu. Þar er í 29. gr. slegið föstu, að enginn geti haft kosningarrjett, ef hann er í skuld fyrir þeginn sveitarstyrk. Hún gerir því ráð fyrir, að ógoldinn sveitarstyrkur sje til og geti svift menn atkvæðisrjetti. Sannast að segja furðar mig á því, að slíkt ákvæði sem þetta skuli hafa komist inn í lög, sem ekki eru eldri en frá 1920, eftir að svo mikið hefir verið um það rætt og ritað, hversu þetta sje ranglátt. Í 4. gr. kosningalaganna er einnig gert ráð fyrir hinu sama. Þetta atriði kostar því sennilega stjórnarskrárbreytingu, og það er ekki aðgengilegt, þótt jeg hins vegar álíti þetta atriði svo þýðingarmikið, að það væri vel þess vert að breyta stjórnarskránni þess vegna.

Þá er annar liðurinn, um þurfamannaflutninginn. Jeg veit, að það var mikið kvartað yfir því á árum áður, hversu ómannúðlega hann hafi verið framkvæmdur. En jeg hygg, að á síðustu árum hafi það færst mikið í lag, enda veit jeg, að hreppstjórar og sýslumenn gera það, sem í þeirra valdi stendur, til að gera hann sem mannúðlegastan. Hitt er annað mál, að þegar stórar fjölskyldur eru teknar upp, þá getur hann aldrei verið fullkomlega mannúðlegur. En þó hygg jeg, að það sje mikill munur á nú og hvernig var fyrir 40–50 árum, þegar þurfalingar voru skilyrðislaust fluttir frá einum hreppstjóra til annars, en sjaldan beina leið, þótt kostur væri á.

Jeg skal svo ekki fara fleiri orðum um þetta. Jeg skal lofa því, að þetta mál skal verða tekið til íhugunar af stjórninni, og hvað sem stjórnin gerir í málinu, þá skal hv. fyrirspyrjandi (H. K.) fá að heyra um það frá henni á næsta þingi.