11.04.1922
Neðri deild: 46. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 463 í D-deild Alþingistíðinda. (2088)
85. mál, endurskoðun fátækralaga
Atvinnumálaráðherra (Kl. J.):
Jeg vildi aðeins leyfa mjer að gera örstutta athugasemd út af því, sem hv. 2. þm. Reykv. (J. B.) hjelt fram, að með sjerstökum lögum mætti ákveða, að ýmsir styrkir skyldu ekki teljast sveitarstyrkir. Þetta er rjett, og hefir verið gert í vissum tilfellum, t. d. í berklaveikislögunum, og jeg sje ekkert því til fyrirstöðu að halda áfram sömu braut.
En eitt er þó altaf óhaggað, og það eru ákvæði stjórnarskrárinnar. Þar er því slegið föstu, að til sjeu sveitarstyrkir, sem geti svift menn atkvæðisrjetti.
Hv. þm. Barð. (H. K.) sagði um 66. gr. fátækralaganna, að oft væri ómögulegt fyrir hreppsnefndaroddvita að hafa gert sýslumanni aðvart á hálfum mánuði, og nefndi sem dæmi Geiradalshrepp, sem er austasti hreppur í Barðastrandarsýslu, þar sem sýslumaðurinn situr á Patreksfirði. Þá er slíkt misskilningur. Það er nóg að hafa skrifað tilkynninguna innan 14 daga, en ekki að hún hafi náð til sýslumanns, en jeg get bent honum á dæmi, þar sem venjulega er ómögulegt, að brjef geti komist á 14 dögum, og það er Grímsey. Venjulega stendur svo á þar, að ómögulegt er að gera sýslumanninum á Akureyri aðvart innan 14 daga, sem ekki heldur er krafist, en þótt nú svo væri, þá liggur það í augum uppi, að augljós forföll mundu aldrei varða kröfumissi. Það gæti og komið fyrir, að oddviti yrði skyndilega sjúkur, áður en hann gæti sent brjef um þetta til sýslumanns, og yrði það því að bíða þangað til honum batnaði.
Jeg er sannfærður um, að það mundi og verða tekið til greina.
Þá er fyrirspurnin frá hv. 2. þm. Reykv. (J. B.), um það, hvort jeg muni ekki taka til greina aðrar greinar þál. frá 1917 en þær, sem hv. þm. Barð. (H. K.) sjerstaklega átti við. Jeg skal lýsa yfir því, að jeg mun taka allar greinar þál. til greina, og þá einkum 1. gr., sem jeg hefi einkum áhuga á.