10.04.1922
Efri deild: 41. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 357 í B-deild Alþingistíðinda. (209)

1. mál, fjárlög 1923

Sigurður Hjörleifsson Kvaran:

Jeg finn mjer skylt að þakka undirtektir undir brtt. mína, bæði háttv. frsm. (H. St.) og ekki síður hæstv. forsætisráðherra (S. E.).

Aðalatriðið er það, að eftir því, sem við horfir, er ekki hægt að búast við, að þessi fjárupphæð megi vera minni en 20 þúsund krónur.

Sje þessi upphæð skoðuð sem áætlunarupphæð, þá er óvarlegt að áætla hana minni en það. Verði hún áætluð minni, leiðir það aðeins til þess, að í fjáraukalögunum kemur sú upphæð, sem því svarar, að hún er of lágt áætluð.

Um styrkinn til augnlæknis held jeg því fram, sem jeg sagði áður um hann. Jeg hefi að vísu aldrei sagt, að í þessum 2400 kr. væri talinn ferðastyrkur, en það er óbeinlínis skuldbinding fyrir lækninn að fara ferðirnar kringum landið og eyða með því besta tíma ársins og verða að þola margvísleg óþægindi, sem enginn mundi taka að sjer fyrir einar 500 kr. framvegis. Vil jeg því eindregið mæla móti því, að hinn umgetni liður verði færður niður, og vona jeg, að háttv. þdm. skilji, hvað fyrir mjer vakir með því.