25.04.1922
Neðri deild: 55. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 468 í D-deild Alþingistíðinda. (2092)
87. mál, skólahússbygging á Eiðum
Forsætisráðherra (S. E.):
Nokkru áður en jeg fór úr ráðuneyti Jóns Magnússonar hafði jeg samþykt, að byrjað yrði á byggingu skólahúss á Eiðum.
Í mars 1920 var húsameistari ríkisins fenginn til að gera teikningu af húsinu og áætlun um kostnaðinn við byggingu þess. Áætlaði hann 180 þús. kr. Var þá keyptur efniviður til byggingar, en ekkert varð úr byggingunni þá vegna dýrtíðar, og var efnið aftur selt. Um haustið 1920 var aðstoðarmaður húsameistara ríkisins sendur austur, og dvaldist hann á Eiðum 13.–14. ágúst, til athugunar. En ekkert var gert í málinu fyr en 1921, er fyrverandi stjórn ljet fara að aka þangað möl og sandi.
Eftir að núverandi stjórn tók við völdum ljet hún hætta við fyrirtækið, af því að hún sá sjer ekki fært að halda því áfram vegna fjárhagsvandræða.
Jeg vil taka það skýrt fram, að stjórnin viðurkennir fyllilega gagnsemi þessa skóla, og að brýn nauðsyn ber til, að þessu fyrirtæki verði sem fyrst hrundið af stað, og það eru því eingöngu fjárhagsörðugleikarnir, sem hamla því í bráðina. Enda gat hv. 2. þm. N.-M. (B. H.) þess líka, að þó að honum fjelli þetta aðgerðaleysi illa, skildi hann samt vel ástæðurnar til þess.
Þá kem jeg að aðalatriðinu, hvenær framkvæmd verksins komist á og hver afstaða hennar sje til annara fyrirhugaðra bygginga landsins.
Það er rjett, að jeg svaraði hv. frsm. fjárveitinganefndar Ed. á þá lund, að viðaukinn við Klepp skyldi sitja í fyrirrúmi. Meinti jeg með því, að ekkert skyldi tekið fram yfir hann, en átti ekki að skiljast svo, að engin bygging gæti orðið honum samferða. Tel jeg sjálfsagt, að byrjað verði á skólahúsinu svo fljótt, sem unt er, en jeg álít samt viðaukann við Klepp enn þá nauðsynlegri, og ef velja ætti á milli þessara tveggja bygginga, mundi jeg taka hann fram yfir.
Jeg hefi gefið hv. 2. þm. N.-M. (B. H.) eins skýr svör og mjer hefir verið unt. Skal jeg enn að lokum taka fram, að stjórnin hefir fullan skilning á þýðingu þessa máls og er því í alla staði hlynt.