12.04.1922
Efri deild: 43. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 480 í D-deild Alþingistíðinda. (2098)

81. mál, brúargerð á Eyjafjarðará

Fyrirspyrjandi (Einar Árnason):

Jeg get þakkað hæstv. atvrh. (Kl. J.) fyrir það, hve hlýlega hann hefir tekið undir þetta mál. Hann sagði fjárhaginn til fyrirstöðu, eins og jeg hafði búist við. Það er vitanlega veigamikil ástæða, en þó er hún langt frá því að vera fullgild. Jeg get ekki sætt mig við það, fyrir hönd Eyfirðinga, að það fje, sem beinlínis hefir verið ætlað til þessarar nauðsynlegu brúargerðar, skuli hafa orðið eyðslueyrir, en brúin látin sitja á hakanum.

Jeg skildi þá svar hæstv. atvrh. (Kl. J.) svo, að undirbúningnum verði haldið áfram í sumar, og brúin bygð á árinu 1923. Við það verður að una. Og í því trausti, að hæstv. stjórn sjái um, að brúargerðin dragist ekki lengur, læt jeg útrætt um þetta mál af minni hendi.