10.04.1922
Efri deild: 41. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 359 í B-deild Alþingistíðinda. (213)

1. mál, fjárlög 1923

Atvinnumálaráðherra (Kl. J.):

Jeg ætla aðeins að gera örstutta athugasemd viðvíkjandi fyrirspurn háttv. 2. þm. Eyf. (E. Á.). Skal jeg skýra frá því, að það er þegar búið að úthluta styrk fyrir yfirstandandi ár til Grímseyjarferða, í samráði við 1. þm. Eyf. (St. St.) og sýslumann Eyjafjarðarsýslu.