10.04.1922
Efri deild: 41. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 370 í B-deild Alþingistíðinda. (222)

1. mál, fjárlög 1923

Björn Kristjánsson:

Jeg á dálitla brtt. á þskj. 223, um að veita Þórarni Guðmundssyni fiðluleikara styrk til þess að kenna fiðluleik hjer á landi.

Það er um þennan mann að segja, að hann lærði á unga aldri á hljómlistarskólanum í Kaupmannahöfn bæði fiðluleik, harmoniufræði o. fl.

Að námi loknu útskrifaðist hann úr þeim skóla með góðum vitnisburði.

Hann leitaði svo til átthaga sinna og hefir nú um nokkur ár kent hjer „musik“, en þar sem hann hefir ekki einvörðungu getað lifað á kenslu, hefir hann orðið að leika svo að segja dag og nótt við leika og á kaffisölustöðum; en þetta þolir hann ekki af því hann hefir verið og er heilsuveill, hefir verið tví-„ópereraður“ og er enn óhraustur. Auk þess er þess konar leikur ekki til þess að þroska ungan mann, heldur hið gagnstæða.

Þórarinn hefir afburða viljakraft og viljakrafturinn hefir haldið honum við, og hæfileikarnir eru ágætir.

Á fiðlu leikur hann ágætlega og hefir mikið vald á harmoniufræði, eins og lög hans benda til. Hann er leikinn í að setja raddir við lög og að beita smekklega „modulationum“, sem er eitt þyngsta viðfangsefni harmoniufræðinnar.

Hann tekur á fiðlunni með krafti og kunnáttu, og það er fiðlan, sem á að ryðja honum braut hjer á landi.

Fiðlan er það hljóðfæri, sem er hentugast hjer á landi til að læra söng eftir, enda víðast notuð til söngkenslu.

Fiðlan er svo ódýr og fyrirferðarlítil, að jafnvel hver kotungurinn getur eignast hana og geymt hana, og hún vekur líf og yndi hvar sem hún hljómar, ef vel er farið með hana. Jeg man eftir, er jeg var á Ísafirði um tvítugt, að þar var maður, sem Bergþór hjet, og hafði hann á sínum yngri árum lært trjesmíði í Kaupmannahöfn og um leið að leika á fiðlu. Hann ljek við öll heldri tækifæri á Ísafirði, og eigi þótti samkvæmi haldandi, ef Bergþór var þar eigi með fiðlu sína.

Svo tók Bergþór þessi instu jörðina í Önundarfirði til ábúðar, sem á hausti og vetrum er hjer um bil dagleið frá Ísafirði. En ekki gátu menn að heldur verið án Bergþórs, þó hann væri kominn þangað. Þeir, sem ráð höfðu á því, sóttu hann þangað til þess að leika á fiðluna í brúðkaupum og við önnur hátíðleg tækifæri. Svo mikils þótti mönnum um vert að heyra fiðluhljóðið.

Jeg tel nú rjett, þar sem þessi kunnátta er nú hingað komin, að landið noti hana á rjettan hátt, manninum sjálfum til aukins þroska og almenningi til gagns og gleði. En það er með því að nota hann til að útbreiða kunnáttuna um landið. Ætti það vel við, að t. d. kennaraskólanemendur lærðu að leika á fiðlu, sem til þess eru hæfir. Ættu það að vera mikil meðmæli fyrir barnakennara að kunna að leika á fiðlu, jafnvel þó þeir yrðu ekki mjög leiknir í því.

Á þann hátt mundi fiðluleikur breiðast fljótt út um landið.

Hjer yrðu tvær flugur slegnar í einu höggi, að útbreiða fiðluleik og að bjarga heilsu og kunnáttu Þórarins.

Og þó þröngt sje í búi, muna menn væntanlega eftir því, að maðurinn lifir eigi á einu saman brauði.

Sumum kann að virðast þessi upphæð of há, en það er hún ekki, þegar tekið er tillit til þess, að hver nemandi ætti að læra samfleytt í þrjú ár, til þess að vera vel hæfur. Framleiðslan mundi því verða 10 menn á þremur árum, og má það ekki minna vera. Aftur ofætlun að ætla kennaranum að kenna fleirum ókeypis en 10.

Jeg veit, að Þórarinn mun leggja allan kraft sinn fram við kensluna, og er það hugsun hans að láta nemendur ganga undir próf.

Jeg sje svo eigi ástæðu til að halda lengri ræðu um þetta mál, en jeg þykist hafa sýnt fram á, að vert sje að taka þetta til athugunar og að það muni veða landinu til góðs og styðji að því, að menn geti í fásinninu notið þeirrar gleði, sem þessu fylgir.