10.04.1922
Efri deild: 41. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 372 í B-deild Alþingistíðinda. (223)

1. mál, fjárlög 1923

Sigurður H. Kvaran:

Jeg vildi aðeins segja nokkur orð út af síðustu brtt. nefndarinnar. Finst mjer, að nefndin hafi tekið mjög ómjúkum höndum á því máli og till., er um það standa í fjárlagafrv. Í rauninni er hjer um tvær till. að ræða, og verður varla annað sagt en að þær komi hvor annari lítið við. Hjer er að ræða um 50 þús. kr. til klæðaverksmiðju á Reyðarfirði og 50 þús. til klæðaverksmiðju á Suðurlandi. Mjer er eigi ljóst, hvernig á því stendur, en svo er að sjá sem till. þessar hafi í háttv. Nd. orðið samfastar eins og kýr, sem bundnar eru saman á hölunum, enda þótt ekkert samband sje á milli þeirra. Hvað því viðvíkur, að lánsheimild sje veitt til verksmiðju á Suðurlandi, þá hefi jeg eigi annað en gott um það að segja. Er það áreiðanlega hvöt til þess að afla fjár. Og jeg álít, að ef um nytsöm fyrirtæki er að ræða, þá verðskuldi þau fyllilega slíka uppörfun fyrir fram.

Menn hafa haft áhyggjur af því, að Árnessýsla væri svo illa stödd fjárhagslega, að eigi væri mikils af henni að vænta í þessum sökum. — Var það sjerstaklega í sambandi við Eyrarbakkabryggjuna. En hver veit nema Árnessýslu opnist nýjar leiðir hvað fje snertir. Jeg álít það nauðsynlegt, ef koma á á stofn þarflegu fyrirtæki, að það fái góða hvöt í upphafi.

En hinsvegar hafa hlutaðeigendur þessa máls viðurkent, að það væri ófullnægjandi undirbúið, en jeg vil taka það fram, að jeg tel það algerlega ómaklegt að halda slíku fram um verksmiðjuna á Reyðarfirði, eins og gert hefir verið. Háttv. frsm. (H. St.) hjelt því fram, að ekkert væri tiltekið um stað þann, er verksmiðjan ætti að vera á, og þykir mjer sú fullyrðing næsta kynleg, þar sem það er tekið fram í till., skýrum orðum, að hún eigi að vera á Reyðarfirði.

Jeg skal fúslega játa það, að engin kostnaðaráætlun hefir verið gerð, enda mun erfitt á þessu stigi málsins að leggja fram slíka áætlun. Er það auðvitað mál, að kostnaðurinn fer eftir því, hve stórt fyrirtækið verður. Það er vitanlega einfalt að kasta inn í þingið einhverri áætlunarnefnd, en hvernig fer með slíkar áætlanir, sem allar reynast vitlausar, er til framkvæmdanna kemur? Og jeg vil leggja áherslu á það, að þó að áætlun liggi eigi fyrir nú sem stendur, þá ber þó eigi að virða málið að vettugi fyrir það.

Háttv. frsm. (H. St.) sagði ennfremur, að það hefði aðeins verið safnað fjárloforðum. Jú, það er mikið rjett. En jeg verð að halda því fram, að það sje eigi svo lítið í það varið, að hafa getað safnað loforðum fyrir 80 þús. kr. á stuttum tíma, og það eigi í allri sýslunni. Sýnir það best, hversu mikill áhuginn fyrir fyrirtækinu er. En hvernig mundi fara, ef Alþingi vildi ekki sýna máli þessu neinn sóma? Þá mundu loforðin auðvitað verða að engu. Það er auðvitað ekki við því að búast, er koma á upp nytsöm fyrirtæki, að loforðin um fjárframlög haldist ár eftir ár, ef löggjafinn sýnir því ekki annað en fyrirlitningu.

Staðurinn hefir verið margskoðaður af mönnum, sem hafa þekkingu á þessum málum, og telja þeir hann einkarvel fallinn fyrir slíkt fyrirtæki sem það, er um er að ræða. En fari svo einhverra orsaka vegna, að eigi geti orðið af framkvæmdum í þessu máli, er þá nokkur skaði skeður, þó að þessi upphæð standi í fjárlögunum? Nei. En hitt skaði, að upphæðin stæði þar ekki, ef úr framkvæmdum gæti orðið.

Á hverju ári fer stórfje frá Austurlandi til útlendra klæðaverksmiðja, sem eðlilegt er, því að hinar innlendu verksmiðjur geta eigi fullnægt eftirspurninni eftir vinnu nje skilað dúkunum fyr en eftir langan tíma. Þannig fer stórfje út úr landinu árlega. Ef hægt væri að koma upp á Austurlandi klæðaverksmiðju, þá væri því um mesta þjóðþrifafyrirtæki að ræða. Jeg verð því eindregið að mælast til þess, að háttv. deild felli brtt. nefndarinnar.

Jeg veit eigi, hvernig á því stendur, að háttv. nefnd hefir skotið inn nýjum lið, sem sje alt að 120 þús. kr. til aukningar rafveitunni á Seyðisfirði. Jeg veit eigi, hvort hjer er um reipdrátt við þetta fyrirtæki, klæðaverksmiðjuna, að ræða, en hitt veit jeg, að þetta lán var heimilað í fjárlögum í fyrra, en þá eigi notað. Er jeg hræddur um, að fari svipað að þessu sinni. Hafa ýmsar slíkar raforkulánsheimildir verið veittar áður, svo sem til Ísafjarðar og Fáskrúðsfjarðar, en þær fallið burt síðar, af því að þær voru eigi notaðar. Tel jeg því eigi goðgá, þó að þessi till. verði feld nú.

Að lokum skal jeg endurtaka það, að jeg mæli eindregið með því, að 36. till. fjvn. verði feld.