10.04.1922
Efri deild: 41. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 388 í B-deild Alþingistíðinda. (230)

1. mál, fjárlög 1923

Björn Kristjánsson:

Jeg vildi aðeins þakka háttv. fjvn. þá hlýju, sem hún hefir sýnt brtt. minni. við 15. gr. 39, á þskj. 223, um Þórarin Guðmundsson, þó jeg að vísu geti eigi fallist á skoðun hennar, því það er sannfæring mín, að best sje að samþykkja till. eins og hún er. Jeg sje mjer því miður eigi fært að lækka till., en jeg vona það, að háttv. nefnd sýni henni engu að síður sömu velvild og áður. Jeg álít það landinu fyrir bestu, að styrkurinn sje veittur svo hár, því, því fleiri nemendur njóta kenslunnar, en sje styrkurinn lækkaður, þá fækkar auðvitað nemendunum að sama skapi.