12.04.1922
Efri deild: 43. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 394 í B-deild Alþingistíðinda. (235)
1. mál, fjárlög 1923
Björn Kristjánsson:
Jeg er þakklátur háttv. fjárveitinganefnd fyrir að hún mælti með tillögu minni um styrkveitinguna til hr. Þórarins Guðmundssonar. Jeg hefi áður fært fram ástæður fyrir þessari fjárveitingu, og fer því ekki meira út í hana nú.
Öðru máli er að gegna með styrkveitinguna til Goodtemplarafjelagsins. Hefi jeg lagt til, að því verði veittar 5000 kr., eða til vara 3000.
Á jeg þar sjerstaklega við að fjelögunum verði gert kleift að halda uppi samskonar bindindisstarfsemi eins og þau hjeldu uppi fram eftir árunum, áður en bannlögin komu í gildi, eða með öðrum orðum til þess með viðræðum og fyrirlestrum aða hafa áhrif á hugi yngri og eldri í þá átt að fá menn til að skoða vínnautn skaðlega og drykkjuskapinn böl.
Enginn mun neita því, að fjelag þetta hafi gert stórmikið gagn í landinu á þessum árum, svo mikið gagn, að menn voru blátt áfram farnir að skammast sín fyrir að láta sjá sig drukkna.
Fjelag þetta hefir starfað í 38 ár fyrir hugsjón sinni, að útrýma vínnautn úr landi. Og mjer er óhætt að segja, að það sje einhver sú óeigingjarnasta starfsemi, sem unnin hefir verið í þessu landi.
Þessvegna ber bæði meðhaldsmönnum og andstöðumönnum bannstefnunnar að líta til hennar með virðingu og velvild, hvað sem skoðanamun líður. Það er vitanlegt öllum, að bannlögin hafa ekki unnið alt það gagn, sem þeim var ætlað að vinna; undirbúningsuppeldið var ekki nógu þroskað, en samt hefir drykkjuskapur þeirra, sem síst máttu við því að drekka, fátæklinganna, verið miklu minni en áður.
Ofan á þetta mun nú bætast, að bannlögin verði afnumin, eða að þeim verði breytt svo, að þau verði sama sem afnumin. Því valda óviðráðanlegar kringumstæður. Þessvegna verður Goodtemplarafjelagið að taka upp sína fyrri stefnu, sem ávalt verður sú varanlegasta, að ala þjóðina upp til þess að forðast víndrykkjuna.
Styrks í þessu skyni naut fjelagið um mörg ár í fjárlögunum áður en bannlögin gengu í gildi, og jeg álít, að svo sje komið, að slíkan styrk eigi að veita á ný.
Stöku maður kynni að hugsa, að slíkur styrkur mundi verða notaður til að æsa menn upp til andstöðu gegn þeim, sem ekki sjá annað fært en að láta undan síga fyrir spánska ofureflinu. En á því er engin hætta.
Jeg hefi talað við suma ákveðnustu bannmenn, bæði hjer og utanbæjar, og hefir hugur þeirra verið alt annar. Þeir líta mjög heilbrigt á það mál og vita að enginn er annar kostur en að gefa eftir, en vitanlega skoða þeir bannlögin með því sama sem dauð. Þetta reiðarslag á bannstefnuna verður því að bætast upp með því að beina starfseminni inn á þá upphaflegu braut, en það gerist best með nauðsynlegu fjárframlagi.
Bindindisstarfsemin þarf að lifa, þó bannlögin hverfi úr sögunni, og þingið á með fjárveitingunni að sýna það bæði þjóðinni og Norðmönnum, að bindindisstefnan er eigi dauð, þótt utanaðkomandi vald meini Íslandi að halda fast við bannlög sín. Og það mun sætta Norðmenn betur við þá niðurstöðu í bannmálinu, er vjer hljótum að komast að.