12.04.1922
Efri deild: 43. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 396 í B-deild Alþingistíðinda. (236)

1. mál, fjárlög 1923

Guðjón Guðlaugsson:

Jeg á brtt. á þskj. 242, um að styrkur eða laun Andrjesar Fjeldsteds augnlæknis verði hækkaður upp í 2000 kr. Upphaflega var styrkurinn áætlaður 2400 kr., en síðar lækkaður niður í 1500 krónur.

Jeg álít þessa niðurfærslu mjög rangláta, sjerstaklega svona mikla, en þar eð jeg gat eigi samkv. þingsköpunum fært það aftur upp í 2400 kr., ljet jeg mjer nægja 2000. Jeg ljet hjer áður í ljósi, að jeg væri óánægður með lækkunina, og var það sjerstaklega vegna þeirrar kvaðar, sem á honum hvílir, að ferðast út á land. En síðar, eftir að jeg hafði skoðað skilríki hjer að lútandi, sá jeg, að mjög margt mælti með því, að styrkurinn væri hækkaður.

Fyrsti augnlæknir landsins, Björn Ólafsson, var aðeins aukalæknir uppi á Skipaskaga áður en hann gerðist augnlæknir og hafði engan rjett til eftirlauna. Var jeg þá, á fyrsta þingi mínu, þess mjög fýsandi, að hann flytti hingað og gerðist augnlæknir fyrir alt landið, og í hrifningu minni yfir því, hve vel honum tókst að lækna menn, sem aðrir voru frá gengnir, nefndi jeg hann augastein landsins. Þegar hann fluttist hingað, krafðist hann 2000 kr. launa og fjekk þau, í stað 1000 kr. sem aukalæknir. 2000 kr. þá jafngiltu um 3600 kr. nú eða reyndar meira. Sömu 2000 kr. fjekk Andrjes Fjeldsted, þegar hann kom hjer, en frá hjerumbil 7000 kr. launum og aukatekjum. Við fráfall Björns Ólafssonar tók Andrjes Fjeldsted við. Var hann eigi tekinn frá prófborðinu, svo sem hinir 2 sjerfræðingarnir, sem sama styrks eiga að njóta, heldur úr einu best launaða læknishjeraði landsins.

Einnig munu honum hafa verið gefnar vonir um styrk, og jafnvel rjett til eftirlauna, en það hefir hann eigi nú eftir bókstafnum.

Af þessum ástæðum er það, að jeg kom með brtt., og jeg trúi því eigi fyrr en jeg tek á því, að háttv. þm. greiði atkv. á móti henni.

Önnur brtt. í sambandi við þessa er sú, að styrkur til sama manns til ferðalaga verði hækkaður úr 500 kr. upp í 700.

Þessi till. er að nokkru komin fram af því, að styrkurinn samkvæmt fyrri liðnum er of lágur, en þó er eigi svo, að þessi ferðastyrkur sje í sjálfu sjer of hár, þótt hann væri 700 kr. Þessi styrkur á að duga til ferðakostnaðar kringum land, og er auðsjáanlegt, að minni má hann ekki vera. Læknirinn hefir ávalt sent stjórninni reikning yfir ferðakostnað sinn, og var hann í fyrra, án dvalar á nokkrum stað, kr. 901,13. Á því geta menn sjeð, að hjer er eigi ofhátt áætlað, því ávalt getur komið fyrir, að hann þurfi að dvelja einhversstaðar á leiðinni um skemri eða lengri tíma, og mundi það hleypa fram kostnaðinum.

Menn gætu nú ef til vill sagt, að ferðalögin auki „praksis“ hans, en slíkt er ekki hægt að segja með neinni vissu, því hann hefir fram að þessu ári verið eini augnlæknir landsins, og allir hafa leitað til hans og ferðast hingað oft með miklum kostnaði. Jeg álít, að „praksis“ augnlæknanna hafi eigi aukist að neinum mun.

Mikið af því fje, sem læknirinn hefir fengið á höfnum úti um land í læknisferðum sínum, mundi hann að öðrum kosti hafa fengið hjer í Reykjavík síðar. En nú er aftur öðru máli að gegna, þar eð augnlæknarnir eru orðnir tveir, og því eigi að vita, til hvors þeirra fje þetta kann að renna.

Nú er ferðastyrkurinn eigi stílaður upp á neitt sjerstakt nafn, og stendur því styrkurinn báðum til boða, þó að reyndar ætlunin sje sú, að sami læknirinn og áður gangi fyrir honum. En hvor þeirra, sem nýtur styrksins, hann tapar þeim tekjum, sem hann ella fengi af lækningum sínum í Reykjavík þann tíma, sem ferð hans tekur, auk þess sem hann hlýtur að tapa á því að hafa lækningastofu sína algerlega lokaða þennan tíma, því á meðan leita sjúklingar til hins og gera svo framvegis. Ennfremur er, eins og menn munu vita, fólk breytingagjarnt, og fer því, og það oft að ástæðulausu, frá einum lækni til annars. Þótt þessi liður sje því skoðaður laus við hinn styrkinn, þá virðist hann af framantöldum ástæðum engan veginn of hár. Skal jeg þessu til stuðnings geta þess, að síðstliðið sumar, enda þótt styrkurinn væri hærri þá, gat læknirinn eigi fullnægt þeim kröfum að dvelja um tíma á tveim stöðum á landinu. Slík dvöl er oft erfið, t. d. vegna strandferðanna, því að eftir þeim fer það, hve langa dvöl hann getur haft á hverjum stað.

Þegar þessa er gætt, þá er áreiðanlegt, að 2700 kr. í stab 2900 er eigi of mikið. Þetta fer þó í sparnabaráttina frá því í fyrra. Vonast jeg því eftir, að háttv. deild ljái þessum lið atkvæði sitt.

Þá kem jeg að 2. brtt. á sama þskj., um styrkinn til forstöðukonu daufdumbraskólans. Við síðustu umræðu lauk jeg lofsorði á nefndina fyrir að vera því fylgjandi og hafa borið fram styrkinn, en 1000 kr. eru aðeins lítið brot af þeim kostnaði, sem ferðin hefir í för með sjer. Í raun og veru þyrfti miklu meira fje, því ferðin er dýr, en þýðingarmikil að sama skapi. Eins og jeg áður sagði, varð jeg hrifinn þegar augnlæknirinn kom fyrst hjer á landi. Þá þekti jeg konu, sem hafði lengi verið blind, en fjekk sjónina aftur. Jeg vona, að jeg lifi svo lengi, að mjer auðnist að verða hrifinn í annað skifti, hrifinn af því að heyra mállausan mann tala. Þessi kona, sem um styrkinn sækir, ætlar sem sje að læra að kenna mál- og heyrnarlausum börnum að tala. Slíkt er æðimikil breyting frá því sem nú er. Eins og háttv. frsm. fjvn. rjettilega tók fram, eru þessir mállausu vesalingar olnbogabörn náttúrunnar. Það er því kristileg skylda að hlynna að þeim eftir mætti. Hjer er um stórbreytingu að ræða, sem vonandi verður unt að framkvæma.

Þeir, sem geta lært að tala, ættu sannarlega að eiga kost á því sjer að kostnaðarlausu. Jeg hlakka til að hitta mállausa menn, sem jeg þekki, og geta talað við þá eins og aðra heilbrigða menn. Nú geta þeir að vísu gert sig skiljanlega með því að læra að lesa og skrifa, en ennþá gleðilegri framför væri það, ef þeir einnig gætu lært að tala.

Jeg vona að hv. deild skeri eigi við neglur sjer þennan styrk og láti sig eigi muna um 1500 kr., sjerstaklega þar sem forstöðukonan sjálf vill leggja í kostnað á móti, því það er auðvitað, að 1500 kr. er of lítið, því hún þarf að dvelja erlendis langan tíma. Jeg hefi altaf heyrt látið vel af kenslu þessarar konu, og jeg vona því, að till. verði vel tekið. Um fleiri till. þarf jeg eigi að ræða, en mun sýna afstöðu mína til þeirra við atkvgr.