12.04.1922
Efri deild: 43. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 407 í B-deild Alþingistíðinda. (241)

1. mál, fjárlög 1923

Frsm. (Halldór Steinsson):

Jeg þarf ekki að svara nema þremur fyrirspurnum frá hæstv. atvinnumálaráherra (Kl. J.).

Hin fyrsta var sú, hvort fjárveitinganefndin hefði tekið afstöðu til sölu á skipinu Borg.

Önnur fyrirspurnin var sú, hvort nefndin hefði tekið afstöðu um kaup á skipi til flutninga fyrir vitana og símana.

Um þetta hefir nefndin ekki tekið neina afstöðu ennþá, en mun gera það innan skamms og tilkynna það hæstv. atvinnumálaráðherra brjeflega hið fyrsta.

Þá er þriðja fyrirspurnin sú, hvort heimilt mundi vera að verja af fje því, sem um er getið í 14. lið 16. gr., til að gera tilraunir með verkun á fiski.

Fyrir nefndarinnar hönd get jeg svarað því, að hún hefir enga afstöðu tekið til þess. En sem formaður viðskiftamálanefndar get jeg gefið þær upplýsingar, að tillagan um þessa fjárveitingu er komin frá henni. Þegar nefndin fór að athuga Spánarmálið og komst að raun um, hve mikið var í húfi fyrir fiskmarkað vorn, þar sem svo að segja alt er komið undir sölu í einu landi, Spáni, þá fanst henni fyllilega vera tími til þess kominn að þreifa fyrir sjer með markað annarsstaðar, og þess vegna lagði nefndin til, að 10 þús. kr. yrðu veittar í því skyni. Það getur því eigi komið til mála, að dómi nefndarinnar, að því fje megi verja til verkunar á fiski eða nokkurs annars.