19.04.1922
Neðri deild: 50. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 417 í B-deild Alþingistíðinda. (248)
1. mál, fjárlög 1923
Jón Baldvinsson:
Það hefði nú ef til vill sýnst svo, sem jeg hefði getað flutt þessa smáu brtt., sem jeg á hjer á þingskjali 255, meðan fjárlagafrv. var hjer áður í deildinni. En jeg vildi fyrst sjá, hvort hv. fjárveitinganefndir beggja deilda gengju fram hjá þessu. Það, sem um er að ræða, eru 500 kr. til styrktar- og slysasjóðs verkamanna í fjelaginu Dagsbrún. Þetta hefir staðið í fjárlögum nokkur ár, og hefir fjárveitingavaldið því sýnt, að það vill styrkja ofurlítið þessa viðleitni verkamanna til að hjálpa hver öðrum. Nú fór fjelagið fram á það við stjórnina í haust, að hún tæki þetta upp í fjárlagafrv., en málaleitun fjelagsins mun hafa komið of seint. Stjórnin sendi því erindið til fjárveitinganefnda, eins og vant er um slík erindi, sem of .seint koma, og nú loks er útsjeð um það, að hvorug hv. fjvn. vill sinna þessu. Jeg hefi því ekki getað borið þetta fram fyr.
Þessi styrktarsjóður, sem hjer um ræðir, er nú um 12000 kr. og er þessari upphæð safnað á mörgum árum í því skyni að bæta verkamönnum eitthvað lítilsháttar þau óhöpp, sem þeir verða fyrir af sjúkdómi og slysum. Þetta er vitanlega smá upphæð, og lítið það, sem sjóðurinn hefir getað miðlað, en þó veit jeg til þess, að það hefir oft komið sjer vel og hefir stundum bjargað þeim, sem hlaut, frá að fara á sveit.
Þegar athugað er nú, hvað veitt hefir verið til verkamanna, þá sjest, að þær upphæðir eru smáar, en þegar litið er til hinna upphæðanna, sem atvinnurekendur fá, þá eru þær talsvert stórar. Jeg hefi nú dregið fram í III. brtt. á þskj. 255 tvær stærstu upphæðirnar, sem veittar eru samtökum atvinnurekenda, og dregið 250 kr. frá hvorri, til þess að sýna, hve litlu munar. Sú till. er nú frekar borin fram til gamans, en öllu gamni fylgir nokkur alvara.
Jeg býst nú við að tala fyrir daufum eyrum hjer, eftir ræðu hv. frsm. (M. P.). Þó er gaman að sjá, hvað sanngirni í garð verkamanna á mikil ítök í hv. deild. Jeg hefi nú að vísu heyrt, að sumir hv. fjárveitinganefndarmenn vildu láta þessi upphæð koma á fjáraukalög að ári, en bæði er að engin tillaga mun um það hafa verið gerð, og svo eru fjáraukalög orð, sem ekki má nefna hjer í hv. deild. Jeg vona því, að hv. deild samþykki þessa litlu brtt.