22.02.1922
Neðri deild: 6. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 435 í B-deild Alþingistíðinda. (261)
38. mál, sérstakar dómþinghár
Flm. (Jón Sigurðsson):
Það er ekki þörf á að segja margt um frv. þetta. Jeg skal aðeins geta þess, að það er flutt eftir ósk hreppa þeirra, er hlut eiga að máli, þ. e. vilja fá þingstaði hjá sjer. Þess má einnig geta, að jeg hefi ekki leitað umsagnar sýslumannsins í Skagafjarðarsýslu, en býst hinsvegar við því, að hæstv. forsætisráðherra geti skýrt frá afstöðu hans. Það virðist með öllu ástæðulaust að spyrna á móti þessu frv. meðan það skipulag helst um þingstaði, sem nú er, að þingað er nálega í hverjum hreppi. Þessir hreppar eiga vissulega eins kröfu á að þingað sje innan þeirra takmarka eins og þeir hreppar, sem þegar njóta þeirra hlunninda, enda hafa mörg önnur slík frv. náð hjer fram að ganga.