06.03.1922
Neðri deild: 15. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 451 í B-deild Alþingistíðinda. (292)
13. mál, lækkun á aðflutningsgjaldi af kolum
Fjármálaráðherra (M. G.):
Mjer datt aldrei í hug, að jeg gæti sannfært háttv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.). En jeg ætlaði að sannfæra háttv. deildarmenn, og jeg er þess fullviss, að það hafi tekist. Salttollurinn getur ekki samkvæmt skýrslum mínum verið unninn upp, og það er því beinlínis að ganga á rjett ríkissjóðs að samþykkja brtt. nefndarinnar.