16.03.1922
Neðri deild: 24. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 459 í B-deild Alþingistíðinda. (326)

50. mál, jörðin Bakki með Tröllakoti lögð undir Húsavíkurhrepp

Frsm. (Björn Hallsson):

Bestar upplýsingar um þetta mál er að finna í brjefi frá oddvita Húsavíkurhrepps, sem prentað er aftan við frv.

Húsavíkurhreppi hinum forna var skift í tvent árið 1912, og nefndust hinir nýju hreppar Húsavíkurhreppur og Tjörneshreppur. En brátt kom það í ljós eftir skiftinguna, að land Húsavíkurhrepps reyndist of lítið, og því tóku Húsvíkingar að leita fyrir sjer um aukið land. Festu þeir þá kaup á jörðinni Bakka, ásamt hjálendunni Tröllakoti, sem lá mjög vel við til afnota fyrir þá, og hefir sú jörð verið í eign Húsavíkurhrepps síðan 1915. En sá galli var á gjöf Njarðar, að jörðin var í öðrum hreppi, Tjörneshreppi, og því erfitt að ná að rækta hana fyrir Húsvíkinga og leggja í mikinn kostnað, þar sem þeir þurftu þá að svara útsvari af umbótunum í öðrum hreppi. Þess vegna tóku Húsvíkingar að hugsa til þess að fá þessa jörð innlimaða í hreppinn. Var í því skyni leitað samkomulags við hreppsnefnd Tjörneshrepps 1918. Stóð á samningum um þetta mál þar til í desembermánuði síðastl., að hreppsnefnd Tjörneshrepps gaf samþykki sitt til þess að jörðin væri færð undir Húsavíkurhrepp, gegn því, að Húsavíkurhreppur greiddi til Tjörneshrepps kr. 1600,00 í eitt skifti fyrir öll, og legði ennfremur á næstu 12 árum akfæran sýsluveg að landamerkjum Bakka og Hjeðinshöfða, og á þessum grundvelli hefir fengist fult samkomulag um málið.

Allsherjarnefnd leggur eindregið til, að þetta mál nái fram að ganga, úr því samkomulag er fengið milli aðiljanna, enda ber álit hennar það með sjer.

Annars er málið mjög ljóst og óþarfi að ræða það mikið. Vænti jeg því þess, að háttv. deild tefji ekki tímann með óþörfum umræðum nú, þó jafnan sje nokkuð mikil tilhneiging til þess hjer í deildinni.