13.03.1922
Neðri deild: 21. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 462 í B-deild Alþingistíðinda. (343)

56. mál, verslunarlóðin í Bolungavík

Flm. (Sigurður Stefánsson):

Þetta frv. er stutt og einfalt og er óhætt að láta greinargerðina, sem fylgir því, duga til þess að skýra það. Lögin, sem það á að breyta, voru sett í fyrra, en vegna ónákvæmni í símskeyti urðu þau á annan veg en til var ætlast. Jeg vona því, að háttv. deild verði vel við að lagfæra þetta. Slík frv. eru vön að ganga orðalaust gegnum þingið, og vona jeg því, að þetta tefji ekki mjög tíma hins háa Alþingis.