16.03.1922
Neðri deild: 24. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 481 í B-deild Alþingistíðinda. (407)

23. mál, prestsmata á Grund í Eyjafirði

Stefán Stefánsson:

Þetta frv. var borið fram í háttv. Ed. og þar vel tekið. Var því vísað til fjhn. og tók það þar nokkrum breytingum. Vænti jeg þess, að þessi háttv. deild sýni málinu alla velvild, og vil leyfa mjer að leggja það til, að því verði að lokinni umræðu vísað til fjárhagsnefndar.

Jeg skal svo jafnframt láta þá skoðun mína í ljósi, að jeg tel frv. þannig, að illa og jeg vil segja ómannlega væri að farið, ef steinn væri lagður í götu þess.

Efni frv. er það, að eigandi Grundar í Eyjafirði verði ekki framvegis skyldur að greiða prestsmötu til prestsins á Akureyri og prestsins í Eyjafirði, sem nú er að Saurbæ. Reynsla er nefnilega fengin fyrir því, að tekjur Grundarkirkju hrökkva engan veginn til viðhalds henni, og verður því kirkjueigandinn árlega að greiða mikið fje úr sínum vasa til þessa. Þykir af þeim sökum rjett að losa hann við þau gjöld, sem frv. nefnir, sem sje árlegt prestsmötugjald til prestanna, heldur að það renni til kirkjunnar.

Þessi maður, sem hjer erum að ræða hefir fyrir 18 árum bygt einhverja hina fegurstu og veglegustu kirkju hjer á landi og varið til þess fje, sem eftir núverandi peningagildi mundi nema í það minsta 36000 krónum. Það er því mjög óeðlilegt, að þessi maður verði ennfremur að greiða prestsmötuna frá kirkjunni, í stað þess að því fje verði varið henni til viðhalds. Þetta er Magnúsi svo mikið áhugamál, að hann býðst til að gefa upp þessar 36000 krónur. Upphaflega rjeðist hann í þessa kirkjubyggingu með það fyrir augum að greiða fyrir sameiningu safnaðanna í Eyjafirði, að tiltækilegra væri að innfjörðurinn væri allur eitt prestakall, og jafnframt til þess að vekja kirkjulífið þar. Jeg vænti þess því, að háttv. þdm. líti svo á hið göfuga áform þessa merkismanns, að þeir neiti honum ekki um þessa sanngjörnu ósk hans. Þessi tilgangur er svo lofsverður, að mjer fyndist næsta óeðlilegt, ef háttv. þdm. vildu ekki styðja hann að þessu góða verki. Vænti jeg þess því, að málið fái góðar undirtektir í þessari háttv. deild.