22.03.1922
Neðri deild: 29. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 483 í B-deild Alþingistíðinda. (410)

23. mál, prestsmata á Grund í Eyjafirði

Frsm. (Þorleifur Guðmundsson):

Eins og háttv. deild getur sjeð á þskj. 123, þá hefir nefndin lagt það til, að þetta frv. verði samþykt eins og það var afgreitt frá háttv. Ed. Það er óþarft að fara ítarlega út í einstök atriði þessa máls nú, því það var gert svo rækilega við 1. umr. Jeg skal þó játa, að mjer finst það heldur óviðkunnanlegt, að háttv. Ed. skuli hafa breytt frv. á þennan hátt og skyldað kirkjueiganda til að gefa kirkjunni upp þessar 36 þúsund krónur, þótt hann hinsvegar hafi væntanlega hlotið að ganga út frá því, er hann bygði kirkjuna, að hann fengi þá skuld aldrei borgaða. Aftur á móti vil jeg taka tillit til hins mikla áhuga á kirkju- og trúmálum landsins, sem þessi veglega kirkja ber ljósast vitni um. Og nefndin hefir einróma látið í ljós það álit sitt, að slíkur áhugi og rausnarskapur eigi fulla viðurkenningu þingsins skilið.

Það er áreiðanlegt, að þessari kirkju mun ekki veita af þessu fje, sem hjer er um að ræða. Hinsvegar munar prestslaunasjóðinn mjög lítið um upphæð, sem ekki nemur meiru en 240 krónum, þegar reiknað er með því verði, sem vænta má, að alinin standi í á „normal“tíma, en sóknina getur munað það nokkru.

Það kann nú að virðast, að þessi kirkja sje óþarflega stór fyrir svo fámennan söfnuð. En svo verður ekki, ef undir hana verða lagðar 2 næstu kirkjurnar, sem vel ætti að mega. Þessar kirkjur eru Miklagarðs- og Saurbæjarkirkja, og er önnur þeirra ekki nema 4 km. frá Grund og hin 7 km., og virðist því frá því sjónarmiði ekkert þessu til fyrirstöðu.

Eins og nú standa sakir, þá nema sóknargjöldin til þessarar kirkju 130 krónum. Er það, eins og flestir munu skilja, ekki mikið fje til að halda við jafnstóru og glæsilegu húsi. Jeg álít og vona, að hin háttv. deild álíti það einnig, að þinginu beri að styðja að því, að slíkir minnisvarðar sem þessi kirkja er megi haldast óskemdir í framtíðinni, og að því beri að styðja að því, að tekjur sjeu því trygðar, því ella má búast við, að á muni skorta. Því enginn getur neitað því, að kirkjan er lifandi vottur hæfileika manns þess, sem hefir reist hana, því hún sýnir fórnfýsi, hagleik og smekkvísi höfundar síns, samfara ást og áhuga á kirkju- og trúarlífi þjóðarinnar.

Þess vegna leyfi jeg mjer að mælast til að um leið og það er sjálfsagt og sanngjarnt að verða við kröfum frv., að þessi háttv. deild samþykki það í einu hljóði í samúðar- og viðurkenningarskyni við hið virðulega verk og hina göfugu hugsjón höfundar kirkjunnar á Grund.