24.03.1922
Neðri deild: 31. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 489 í B-deild Alþingistíðinda. (421)

23. mál, prestsmata á Grund í Eyjafirði

Frsm. (Þorleifur Guðmundsson):

Jeg stend aðeins upp til þess að staðfesta það, sem jeg sagði við 2. umr., að nefndin er að íhuga þetta mál núna, en hefir ekki unnist tími til að gera neinar till. enn. Hvort breyting kemst á á þessu þingi, er undir því komið, hvernig hv. þm. sjálfir taka í það mál.