20.03.1922
Neðri deild: 27. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 492 í B-deild Alþingistíðinda. (433)

6. mál, almenn viðskiptalög

Frsm. (Gunnar Sigurðsson):

Allsherjarnefnd hefir haft þetta mál til athugunar og leggur einróma til, að frv. verði samþykt eins og það er, eða kom frá stjórninni. Jeg skal geta þess, að upphaflega eru lög þessi samin af þar til kjörnum nefndum á Norðurlöndum, og var mjög til laga þessara vandað. Til okkar eru þau komin sem þýðing á dönsku lögunum, en ólögfróður maður þýddi, sem að öðru leyti var vel hæfur maður, en af því hann vantaði lagaþekkingu, slæddist inn í lögin ýmiskonar ónákvæmni og rangur skilningur á lögunum, eins og t. d., að ekki er gerður munur á gjalddaga og eindaga, sem er þó mikill munur frá lögfræðislegu sjónarmiði. Sum ákvæði laganna eiga alls ekki við hjer á landi, t. d. ákvæði 25. gr. um löggilta brakúna. Þeir eru ekki til hjer á landi, enda er þeirra hvorki getið í sænsku nje norsku lögunum. Þá fara sumar breytingar frv. í þá átt að fella það úr lögunum frá 1911 niður, sem eingöngu er miðað við danskt rjettarástand.

En sem sagt, úr göllum þessara laga er nú bætt; einn háskólakennarinn við lagadeildina hefir endurskoðað þýðinguna, og eru breytingarnar í frv. þaðan komnar. Og báðar allshn. þingsins hafa fallist á breytingarnar. Vænti jeg því, að háttv. deild samþykki frv. umræðulaust.