11.03.1922
Neðri deild: 20. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 501 í B-deild Alþingistíðinda. (447)
37. mál, dýraverndun
Sigurður Stefánsson:
Það er síður en svo, að jeg sje á móti hinni loflegu starfsemi „Dýraverndunarfjelagsins“. En mjer finst fjelagið eigi ekki að fara út fyrir það svið, sem lýtur að aflífun húsdýranna, nema mikil nauðsyn reki til. Flest annað verður pappírsgagn, þar sem reynt verður að þræða alla mögulega og ómögulega krókavegi í kringum lögin. Og jafnvel úti um sveitirnar munu hinar góðu reglur um aflífun búpenings reynast pappírsgagn meira en skyldi. Því ekki verður hægt að hafa eftirlit með slátrun á hverjum einasta bæ á öllu landinu. Aftur á móti verður auðveldara að framfylgja öllum slíkum reglum í kaupstöðum; þar er strjálbygðin síður til fyrirstöðu.
Jeg er samþykkur háttv. 2. þm. Skagf. (J. S.) um það, að ekki muni verða breytt um veiðiaðferð við Drangey samkvæmt fyrirmælum frv., án þess að rýra að miklum mun tekjurnar af fuglaveiðinni. Jeg er gamall Skagfirðingur og veit því vel, hvernig veiði þessari er varið. Jeg man það vel, að allajafnan tók fyrir veiðina, ef enginn „bandingi“ var hafður á flekunum. Og sama varð og, ef „bandinginn“ dó; þá hætti fuglinn að skríða upp á flekana, og varð þá að fá nýjan „bandingja“. Eins og bent hefir verið á, þá er um miklar tekjur af fuglaveiði við Drangey að ræða, en það er auðsætt, að þær tekjur mundu rýrna til muna, og koma hart niður á einstökum mönnum, ef breytt væri um veiðiaðferðina frá því, sem tíðkast hefir um langan aldur.
En það eru fleiri fuglar veiddir en svartfuglinn við Drangey. Jeg skal t. d. nefna „kofnaveiðina“ á Breiðafirði og víðar á Vestfjörðum. Eins og kunnugt er, verpir lundinn í djúpum holum, sem hann grefur niður og inn í jarðveginn, og þar er unginn, kofan, tekin, þegar hún er að verða fleyg. En svo djúpar og langar eru þessar holur, að ekki er hægt að ná unganum nema með járnkrók, sem hann er kræktur út með. Og það er alt annað en fögur sjón að sjá suma ungana, ef til vill meira og minna særða og stundum með garnirnar útbyrðis. Jeg neita því ekki, að þetta sje ómannúðlegt og jeg er ekki að mæla því bót, en hvað skal segja, þegar um jafnmiklar tekjur er að ræða og hjer á sjer stað? Ef nú á að banna svona með lögum, þá er þar með lagt bann við atvinnu fjölda manna.
Þess vegna er jeg algerlega á móti því, að stjórnin eigi að skipa fyrir um, hvernig veiðum þessum beri að haga. Það er sýslna og hreppa að setja sjer reglur þar um, eftir því sem reynslan hefir kent að hentar best.
Annars verður spurningin um það, hvort meira eigi að ráða mannúðin eða tekjuvonin af þessum veiðum, og þykist jeg þá hafa svarað henni fyrir mig.
Það var þetta, sem jeg vildi segja, er jeg kvaddi mjer hljóðs.