25.03.1922
Efri deild: 29. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 508 í B-deild Alþingistíðinda. (465)
37. mál, dýraverndun
Guðmundur Guðfinnsson:
Frv. þetta er fram komið frá Dýraverndunarfjelagi Íslands, og hefði jeg gjarna viljað, að það næði fram að ganga.
Jeg get alls ekki fallist á það, sem háttv. allsherjarnefnd hefir á móti frv., og jeg er sannfærður um, að frumvarpið hefir fylgi meðal almennings.
Þegar reglurnar um slátrun búpenings voru settar, tóku sveitirnar það svo, að eftir þeim ætti að fara einnig þar, og fengu sjer því tilfæringar til að geta framfylgt þeim; eða að minsta kosti var svo í Rangárvallasýslu, og nú þekkist varla að deyða skepnu þar öðruvísi en með skoti. Jeg tel því alveg sjálfsagt að halda áfram þessum mannúðarreglum, sem þegar er byrjað á.
Háttv. allsherjarnefnd segir í nefndaráliti sínu, að með því að samþykkja frv. þetta muni skotvopnum fjölga í landinu. Það er aldrei nema satt. En að drápgirni manna aukist, þó að þessum skotvopnum fjölgi, er sú mesta fjarstæða, því að þær byssur, sem notaðar eru til þess að deyða með sauðfje, eru skammbyssur, og með þeim er ekki hægt að skjóta fugla, að minsta kosti ekki sem hægt er að telja.
Sumir halda því fram, að gott sje að deyða sauðfje með rothöggi. Er jeg ekkert á móti því, ef það er gert vel.
Jeg hygg að þetta frv. hafi fengið þessa meðferð hjer út af fuglaveiðunum í Drangey. Að þar sje ekki hægt um að þoka, af því að þar um sje sýslusamþykt, veit jeg ekki. En jeg fyrir mitt leyti lít svo á, að sú veiðiaðferð, sem þar er notuð, sje ekki svo mannúðleg, að haldandi sje hlífiskyldi yfir henni.