20.03.1922
Neðri deild: 27. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 528 í B-deild Alþingistíðinda. (522)

60. mál, einkaréttur til að selja allt silfurberg

Jón Þorláksson:

Jeg er samþykkur efni þessa frv. Jeg álít það hagkvæmt, að ríkið hafi einkasölu á silfurbergi til útflutnings, ef það á annað borð getur flutt út silfurberg, en á því virðist mjer nokkur vafi að svo stöddu. Þessi eina silfurbergsnáma, sem til er á Íslandi, hefir ekki verið rekin um nokkur ár, og það er grunur manna, að hún sje nú tæmd. Ef sá skyldi nú verða endir á rannsókn þeirri, sem nú er verið að framkvæma, að þetta reynist rjett, þá tel jeg óheppilegt, að þessi lög verði í gildi gengin. Því að varan er ekki fáanleg annarsstaðar en hjer, og ef ríkiseinkasala verður ákveðin, þá hvílir siðferðisleg skylda á stjórninni að hafa vöruna á boðstólum og láta leita hennar á öðrum stöðum, ef hún finst ekki þarna. En sú leit hefir mikinn kostnað í för með sjer. Þess vegna kysi jeg helst, að ekkert yrði hafst að í þessu máli fyr en rannsókn þeirri er lokið, sem nú stendur yfir með silfurbergsnámuna á Helgustöðum. Ef þar finst silfurberg áfram, þá er ekkert við þetta að athuga, en ef það finst ekki, þá er betra að vera ekki búinn að binda sig. Þá geta þeir leitað silfurbergs, sem fje vilja í það leggja, en skuldbindingar hvíla engar á ríkisstjórninni.

Jeg vildi þess vegna skjóta því að fjvn., að hún athugaði það til 3. umr., hvort ekki væri heppilegra að málinu yrði ekki haldið lengra á þessu þingi, heldur frestað uns það kemur í ljós, hvort grunurinn um það, að náman sje tæmd, er á rökum bygður.