08.03.1922
Efri deild: 16. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 939 í B-deild Alþingistíðinda. (55)
Mannaskipti í nefndum
forseti (G. B.):
Eins og háttv. deildarmönnum er kunnugt, hefir hans hátign konungurinn skipað nýja stjórn, og er forsætisráðherrann þingmaður úr þessari hæstv. deild. Og þar sem hann var í tveimur nefndum hjer, fjárhagsnefnd og viðskiftamálanefnd, þarf að skipa menn í hans stað í þessar nefndir.
Það hefir nú verið venja hjer á Alþingi, að flokksmenn þess manns, sem frá fer, komi sjer saman um menn í staðinn. En þar sem nú allir flokksmenn þess manns, er frá fer, eru eigi staddir á fundinum, er eigi hægt að gera þetta nú. En það verður að gerast sem fyrst.