01.04.1922
Neðri deild: 38. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 570 í B-deild Alþingistíðinda. (567)
15. mál, útflutningsgjald
Jakob Möller:
Það var aðeins út af ræðu háttv. 1. þm. Skagf. (M. G.), að jeg vildi tala nokkur orð. Hann vakti athygli á því, að búið væri að taka lán til Flóaáveitunnar, sem hefði aðeins orðið eyðslufje. Þetta er í raun og veru rjett, en það breytir engu um þetta, því það gildir sama um þetta lán eins og önnur, að það er mikið álitamál, hvort rjett sje að leggja skatt á atvinnuvegina til þess að afborga lánið, meðan afkoman er svo erfið, sem nú horfir.
Hann gerir nú ráð fyrir miljón króna í ófyrirsjáanleg útgjöld, sem ekki eru áætluð í fjárlögunum, en móti því hefir maður um 1 miljón króna að hlaupa upp á, og þar að auki veit maður, að tekjuskatturinn hlýtur að fara fram úr áætlun. Jafnvel þó gert sje ráð fyrir miljón í ófyrirsjeð gjöld, þá munu samt um það bil tekjuhallalaus fjárlög, því þó tölulegur halli í fjárlögunum sje 200000 kr. og legðist við það útflutningsgjaldið, sem er áætlað, að nema muni 350000 kr., þá er það til samans rúm ½ miljón; bætist nú við hana ½ miljón í ófyrirsjeðum gjöldum, yrði það rúm miljón, og stenst þannig á endum, þó ekki sje gert ráð fyrir, að tekjuskatturinn fari fram úr áætlun.
Það var nú aðallega þessi stutta athugasemd, sem jeg vildi gera og skal jeg ekki lengja umræðurnar.
Háttv. samþingismaður minn (J. Þ.) gerði aðeins grein fyrir atkvæði sínu og óx honum í augum hve mikið skuldirnar hafa hækkað á undanförnum árum. Jeg hefi játað, að skuldirnar hafi farið hækkandi alt til þessa, en jeg er vongóður um það, að á þessu verði nú breyting til batnaðar. Jeg byggi þá von mína á fjárlögunum og undrast, að hv. frsm. (M. K.) skuli segja, að fjárlögin komi ekki þessu máli við. Þau koma jafnan málinu við, er um fjárhagsmál er að ræða, enda man jeg ekki betur en að hann sjálfur hafi allmjög vitnað í tekjuhallann í fjárlögunum.