08.04.1922
Efri deild: 40. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 580 í B-deild Alþingistíðinda. (587)
15. mál, útflutningsgjald
Sigurður Hjörleifsson Kvaran:
Jeg verð að lýsa það fullkominn misskilning hjá hv. 1. þm. Húnv. (G. Ó.), sem hann hjelt fram í ræðu sinni, að jeg hefði ekki getað eða viljað gefa honum upplýsingar um þetta mál rjett fyrir fundarbyrjunina. Það, sem jeg gat ekki gefið honum upplýsingar um, var hve mikið ætti að draga frá síldargjaldinu. Það veit enginn og ekki heldur hve mikið útflutningsgjaldið yrði í alt, þegar það vantar frá Vestmannaeyjum. Hv. meðnefndarmaður minn getur ekki ætlast til, að jeg viti alt, eða það sem enginn maður veit.