08.04.1922
Efri deild: 40. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 580 í B-deild Alþingistíðinda. (588)

15. mál, útflutningsgjald

Karl Einarsson:

Jeg ætla aðeins að gera stutta athugasemd út af ræðu hv. 2. þm. S.-M. (S. H. K.). Hann kom hjer með þær upplýsingar, sem jeg get ekki kannast við, að sjeu rjettar. Hv. þm. virðist blanda þar saman útflutningsgjaldi því, sem hjer er um að ræða, og gamla útflutningsgjaldinu af vörum, frá 1881; en þau fjellu úr gildi 1. jan. 1922, samkvæmt lögum frá 27. júní 1921. Hjer er aftur um að ræða 1% gjald af útfluttum vörum, er kom í stað stimpilgjaldsins. Giltu lögin um það aðeins fyrir síðastliðið ár, en með frv. þessu á að framlengja þau.

Skýrslur þessa hv. þm. eru því líklega vafasamar mjög, þar eð hann virðist blanda saman tvennskonar gjöldum.

Ekki er það heldur rjett hjá hv. þm., að skýrslur um útflutningsgjald vanti frá Vestmannaeyjum. Jeg sendi stjórninni þær nægilega snemma og bera skýrslurnar með sjer, að útflutningsgjaldið þar nam 24 þús. og stimpilgjaldið um 75 þús. Ætla jeg svo ekki að ræða um þetta meira.