27.02.1922
Neðri deild: 10. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 594 í B-deild Alþingistíðinda. (619)
19. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka
Forsætisráðherra (J. M.):
Það eru aðeins örfá orð sökum þess, að háttv. 4. þm. Reykv. (M. J.) mintist á mig, en deiluna um það, hvort lögin hafi náð gildi eða ekki ætla jeg eigi að ræða. Er það hlutverk nefndarinnar að athuga um það. Það er ekkert gagn í því að málið sje, á þessu stigi, rætt frá lögfræðislegri hlið.
Það var eigi alveg rjett hermt hjá háttv. þm., hvað jeg hefði sagt á 1. fundinum, en jeg er fús að skýra nefndinni frá því, hvað jeg sagði á þeim fundi.