27.02.1922
Neðri deild: 10. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 594 í B-deild Alþingistíðinda. (620)
19. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka
Gunnar Sigurðsson:
Hv. 4. þm. Reykv. (M. J.) sagði, að það gæti komið hart niður á einstöku mönnum, ef seðlarnir væru dregnir inn. Það er rjett, en það er ekki aðalatriðið, heldur hitt, að það kemur hart niður á öllum, ef bankanum er sama sem lokað, hvaða trygging sem í boði er. Það ástand má ekki standa lengi. En þetta frv. bætir nokkuð úr því.
Hæstv. fjrh. (M. G.) kvað stjórninni ekki hafa verið fært að skipa bankanum að lækka vextina. Þetta er ekki rjett. Stjórnin gat gert það að skilyrði fyrir lánveitingunni til hans, og það átti hún vissulega að gera.