20.03.1922
Neðri deild: 27. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 598 í B-deild Alþingistíðinda. (628)

19. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka

Fjármálaráðherra (Magn. J.):

Brtt. hv. fjárhagsnefndar fer fram á að ákveða nánar um heimild landsstjórnarinnar til þess að sjá fyrir seðlaútgáfu, ef þörf reynist á, að slíkt sje gert. Tekur brtt. fram, að Landsbankinn skuli hafa þessa seðlaútgáfu, og þó niðurstaðan líklega hefði orðið söm, ef stjórnin rjeði þessu, sje jeg þó ekki beinlínis ástæðu til að mæla með þeirri takmörkun á heimildinni til stjórnarinnar samkvæmt frv., sem brtt. fer fram á. Jeg tel enga hættu á því, þó skipulaginu sje frestað um 1 ár.

Jeg vil taka það fram, að í þessa heimild til ríkisstjórnarinnar til þess að setja í umferð þá seðla, er nauðsyn krefur, legg jeg það, að þessir toppseðlar skuli málmtrygðir engu síður en aðrir seðlar. Annars lít jeg svo á, að þessi ákvæði ættu að fá sem minsta þýðingu á þessu ári.