20.03.1922
Neðri deild: 27. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 613 í B-deild Alþingistíðinda. (633)

19. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka

Bjarni Jónsson:

Það er ræða hv. þm. Borgf. (P. O.), sem veldur því, að jeg stend nú upp, og svo það atriði, að jeg er eini maðurinn hjer staddur, sem á sæti í hinu umrædda bankaráði. — Mjer dettur ekki í hug að vefengja það, sem háttv. þm. Borgfirðinga las upp úr bankaráðslögunum. Jeg neita því heldur ekki, að betur hefði verið að bankaráðið hefði ráðið meiru um rekstur bankans, en eins og háttv. þm. veit, á þingið sjálft sök á því, þar eð bankaráðsmennirnir sitja hver á sínu landshorni og hafa því afarsjaldan tök á að koma saman til ráðstefnu. Það er líka satt, að bankinn er eign einstakra manna, og ber þannig skylda til að hafa áhuga á, að hluthafar sínir græði. En það er engu að síður áreiðanlegt, að niðurstaðan hefir á síðustu tveim árunum orðið sú, að bankinn hefir orðið fyrir stórtjóni, sem nemur miljónum króna, og það fje hefir að nokkru leyti runnið í vasa landsmanna. Samt er rjett hjá háttv. þm. Borgf. (P. O.), að bankinn hefir hvöt til að græða fje og neyta allra leyfilegra meðala í þá átt, en þess vegna hafa verið settar skorður við honum, svo hann geti ekki gengið of langt.

Háttv. 1. þm. Skagf. (M. G.) skýrði frá því, að í hinni nýju reglugerð bankaráðsins er kjörtíminn lengdur, svo að hann nú er 12 ár, og sett það ákvæði að bankaráðsmennirnir búi í Reykjavík eða nágrenni við hana. En auk þess er þar bætt úr enn einu atriði, sem mjög hefir staðið bankaráðinu fyrir þrifum. Áður voru fundir bankaráðsins boðaðir með svo löngum fyrirvara, að menn, búsettir í útlöndum, sem ættu sæti í ráðinu, gætu náð að sækja fundina. Nú getur formaður hvenær sem er kallað saman fund, og löglegir fundir því verið haldnir langtum oftar en áður.

Það er aftur á móti ekki rjett hjá háttv. þm. Borgfirðinga, að bankaráðið hafi ekki reynt að taka í taumana út af hækkun vaxtanna. En því ámæli hefði háttv. þm. helst átt að beina til formanns bankaráðsins, en þareð háttv. þm. var stuðningsmaður hans, hefir honum sennilega ekki þótt taka því.

Jeg gat um það við 1. umr., að jeg hefði æskt, að vextirnir væru lækkaðir, en bankastjórnin sá sjer það ekki fært, meðal annars vegna þess, að bankinn yrði að gjalda í landssjóð alla vextina af því, sem væri úti fram yfir 7000000 kr. í seðlum. — Jeg skal aftur á móti fúslega játa, að fyrirkomulagi ráðsins hefir verið þannig háttað, að ráðið gat á litlu gagni komið, en endurbæturnar á reglugerðinni ættu að ráða bót á því. Í þessu sambandi skal jeg geta þess, að þó að forsætisráðherra hafi um nokkurra ára skeið verið formaður bankaráðsins, og jafnframt farið með umboð af hendi hinna útlendu bankaráðsmanna, þá á það samt sem áður alls ekki að eiga sjer stað. Forsætisráðherrann má ekki hafa með höndum umboð fyrir stofnun, sem er að mestu leyti eign útlendra hluthafa, því annaðhvort lítur hann meira á hag hluthafanna, og þá er hag þjóðarinnar illa borgið, eða hann metur þjóðarhaginn meira, og þá verða hluthafarnir útundan. Jeg tek þetta fram, án þess að það komi við málinu, sem fyrir liggur, af því að verið var að ræða fulltrúaráð bankans.

Háttv. þm. Borgfirðinga gerði mikið úr gróða bankans á umliðnu ári, og þótti gott að bankinn græddi svo, að hann gæti reist sig við aftur eftir tjónið, sem hann hefir orðið fyrir, en kvað ekki mega leggja atvinnuvegi landsins á höggstokkinn fyrir hag bankans. — Jeg er honum sammála um, að vextirnir eiga að lækka, enda þótt þeir sjeu ekki svo háir, að þeir geti drepið atvinnuvegina. Hjer er að ræða um 1% vaxtamismun, sem nemur 125 þúsundum króna alls, en þar af renna 40 þúsundir í landssjóð. Þó hjer sje ekki um stærri upphæð að ræða, er samt rangt, að bankanum hlotnist þessi aukaágóði, en það er heldur ekki rjett að tiltaka langtum hærri tölur en eiga sjer stað. Jeg stend hjer ekki sem málsvari bankans, en jeg vil ekki, að hallað sje máli á þá, sem ekki geta svarað fyrir sig.

Bankanum var gerður stórgreiði, er landið ljet honum eftir mikinn hluta af erlenda láninu. Var það gert til þess að hann gæti gegnt skyldu sinni gagnvart atvinnuvegum landsins. En jafnframt var honum gert að skyldu að gjalda fyrir Landsbankann 1 miljón króna í útlöndum, og þó sumir telji það lítilsvert, er samt athugandi, að metið er af sjerfræðingum, þ. e. bankamatsnefndinni, að bankinn hafi á þessari ráðstöfun skaðast um 295 þúsundir króna, og hlutabrjef hans þar af leiðandi fallið í mati hennar um meira en 20%. Jeg get þessa af því að mjer finst rjett, að það sje tekið fram, en ekki til þess að draga úr aðalatriðinu, að vextirnir verði lækkaðir, því það er eingöngu rjett og sanngjarnt.

Hagur bankans og atvinnuveganna á eðlilega að fara saman, en þegar út af því kann að bregða, á að lagfæra það sem fyrst.

Háttv. þingmaður Borgfirðinga hjelt því fram, að seðlaútgáfurjetturinn væri of rúmur, og sagði að afleiðingin mundi verða sú, að menn gætu auðveldlega fengið lán og fasteignir hækkuðu í verði. Það er að vísu að sumu leyti rjett, en aðgætandi er þó, að húsa- og jarðabrask var byrjað í stórum stíl áður en seðlaútgáfan kom til mála. Það er alkunnugt, að þessi óeðlilega háa sala fór mest fram á pappírnum. Hús var selt fyrir 100 þús. kr., en borgunin var vjelabátur eða annað því um líkt, sem líka var alt of hátt verðlagt.

Jeg held, að það sje gert langtum meira úr háskanum við seðlaútgáfuna en ástæða er til. Bankinn mun aldrei hafa gefið meira út af seðlum en nauðsyn bar til. Og þegar hæst var seðlafúlgan, þá var hún aukin um síðustu miljónina samkvæmt beiðni stjórnarinnar, vegna brýnnar nauðsynjar landssjóðs.

Jeg hygg ekki, að peningakreppan stafi af of mikilli seðlaútgáfu. Jeg hefi ekki sjeð færðar neinar sönnur á, að fjárkreppan sje meiri en eðlilegt er og bein afleiðing af óhöppum þeim, sem við höfum orðið fyrir á síðustu árum í sölunni á afurðum okkar. Það er ekki hægt að segja, að við höfum eytt of miklu, og því óþarfi að leggjast svo djúpt að kenna aukinni seðlaútgáfu um fjárþröngina, enda mun hjer, miðað við hvern mann, vera minna af seðlum í gangi en í nokkru öðru landi. — En hjer hagar alt öðruvísi til en nokkursstaðar annarsstaðar. Hjer á landi er rekinn einn atvinnuvegur, sem útheimtir miklu meira rekstrarfje en allir hinir til samans. Hjer er það útvegurinn, sem tekur aðalfjármagnið, og miklu meira hlutfallslega en á sjer stað um nokkurn atvinnuveg innan annara þjóðfjelaga, og þyrfti því auðvitað meira fje að vera hjer í veltu en í nokkru öðru landi, og ekki svo sem er, minna.

Jeg verð að taka undir með háttv. 1. þm. Skagf. (M. G.), að mjer þykir undarlegt að háttv. þm. Borgfirðinga skuli ekki vilja leyfa hæstv. stjórn neitt í þessu efni. Ef við getum ekki treyst stjórninni í efni eins og þessu, eigum við enga stjórn að hafa. Það er ekki hægt að krefjast þess, að hver einstakur löggjafi sje sjerfræðingur í fjármálum, og það væri illa farið, ef atkvæðafjöldinn ætti að ráða niðurlögum þessa máls í samkomu eins og þessari, þar sem eðlilega mikill meiri hluti ber lítið eða ekkert skynbragð á bankamál. — Stjórnin stendur aftur á móti langtum betur að vígi og getur útvegað sjer sjerfræðing í þessum efnum þegar henni sýnist.

Nokkrir háttv. þm. hafa látið í ljós, að ekki mætti draga seðlana of fljótt inn, og held jeg, að enginn muni vefengja það. — Ein afleiðingin af því mundi verða sú, að tregða yrði á lánveitingum og menn neyddust því til að taka lán með okurrentum. Ekki 9%, heldur 12–16%, eins og ekki er laust við, að þegar hafi komið fram. Og þessa mundi einhversstaðar gæta í atvinnuvegunum, ef háttv. Alþingi tæki upp á því að draga inn seðlana, sem menn nauðsynlega þurfa.

Jeg sje því ekki ástæðu til annars en að fylgja frv. stjórnarinnar eins og jeg áður hefi tekið fram. Jeg stóð upp, ekki af því að jeg sje sjerfræðingur í þessu efni, heldur til þess að sýna háttv. þm. fram á, að þótt vextirnir hafi ekki verið lækkaðir, er það ekki að kenna mannvonsku fulltrúanna, sem háttv. Alþingi hefir kosið. Jeg hefi ekki haft nein meðul til að knýja forsætisráðherrann til að halda fund og hefi heldur ekki haft ráð á nema mínu atkvæði. Það hefir á undanförnum fundum verið svo, að forsætisráðherrann einn hefir haft meiri hluta atkvæða, þar eð hann hefir haft í umboði 3 atkvæði frá útlöndum.

Jeg vona, að háttv. Alþingi flýti sem mest fyrir þessu frv., svo lækkun vaxtanna geti sem fyrst komist á.