20.03.1922
Neðri deild: 27. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 624 í B-deild Alþingistíðinda. (636)
19. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka
Magnús Guðmundsson:
Hv. frsm. (M. K.) skildi orð mín svo, að jeg hefði haft á móti brtt. nefndarinnar. En þetta er algerður misskilningur. Jeg nefndi brtt. ekki á nafn. Jeg get nú lýst yfir því, að jeg get greitt þeim atkv. með ánægju. Hjer er því ekki um neinn stefnumun að ræða.
Viðvíkjandi háttv. þm. Borgf. (P. O.) skal jeg geta þess, að jeg kom fram með frv. þetta til að tryggja það, að Íslandsbanki lækkaði vexti sína. Ef stjórnin gæti fengið því framgengt án þessara ívilnana, þá er vel. Jeg skal ekki setja mig á móti því. En jeg hefi enga trú á, að því verði framgengt, og hvað mikið, sem háttv. þm. leggur að bankaráðinu um lækkun vaxtanna, fær hann því ekki framgengt. Háttv. þm. hlýtur því að sjá, að rjettara er að samþykkja frv.; annars siglir hann vaxtalækkuninni í strand.
Þá sagði háttv. þm. Borgf. (P. O.), að bankinn mætti hafa úti alt að 9 milj. kr. fram í októbermánuð, en hann gat þess ekki, að þá verður bankinn líka strax að draga inn eina miljón kr., einmitt á þeim tíma, sem mest þarf að vera í umferð, og er það ófært. Bankinn má því alls ekki um byrjun október í haust hafa úti meira en 7 milj. til þess að geta fullnægt viðskiftaþörfinni í október; að draga inn seðla um það leyti árs væri hreinn háski. Nú eru um 6½ milj. í umferð og fer hækkandi.
Út af því, sem hann sagði um það, að þingið væri færara en stjórnin að ákveða seðlaþörfina, má geta þess, að vel mætti svo vera, ef þingið sæti á þeim tíma, en það gerir það nú einmitt ekki, svo hið eina, sem það gæti gert, væri þá að ákveða svo háa upphæð, sem víst væri að dygði. En nú mun háttv. þm. Borgf. varla vilja ákveða hærra en nauðsyn krefur, og það vil jeg ekki heldur, og því álít jeg rjett að fela stjórninni ákvörðunarrjettinn á þessu.
Jeg lít alveg eins á það mál og háttv. frsm., að þessir krónuseðlar, sem Landsbankinn hefir gefið út, sjeu aðeins skiftimynt, og því beri eigi að draga þá frá þeirri ¾ milj. kr., er Landsbankinn má gefa út. Auk þess eru þessar 300000 kr., sem gefnar hafa verið út, eigi hærri upphæð en smápeningarnir voru, sem nú eru horfnir úr landinu.
Háttv. þm. Borgf. (P. O.) þótti það „því nær“ óhugsandi, að meiri seðlaútgáfu þurfi á þessu ári en lög heimila, en það er ekki nóg að það sje því nær víst. Það verður að vera alveg víst, að viðskifti þurfi ekki að stöðvast vegna seðlaleysis. Háttv. sama þm. þótti jeg í þessu máli vera ónýtur málsvari ríkissjóðs. En hvernig gætir hann hags landsmanna? Hann vill ekki gefa nokkur þúsund eftir af tekjum ríkissjóðs til þess að landsmenn losni við að borga á annað hundrað þús. kr. árlega. Hann byggir alt á því, að bankaráðið geti fært vextina niður, sem er rjett. En hvað stoðar það, fyrst bankaráðið vill það ekki eða gerir það ekki? Munurinn á mjer og háttv. þm. Borgf. (P. O.) í þessu máli er sá, að hann talar um, hvað gera eigi, en jeg geri það.