24.03.1922
Efri deild: 28. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 647 í B-deild Alþingistíðinda. (647)
19. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka
Fjármálaráðherra (Magn. J.):
Jeg skal ekki vera langorður, aðeins svara þeim fyrirspurnum, sem beint hefir verið til mín.
Mjer datt í hug, þegar jeg heyrði þetta skjal, sem háttv. 2. þm. S.-M. (S. H. K.) las upp, hið gamla orðtæki: „Það er dýrt að vera fátækur“. Hefir það hingað til reynst sannmæli.
Það er ekki nema eðlilegt, að menn vilji græða fje, en hitt hefir þó ætíð verið talið rjett, að lánveitendur gengju eigi of langt á þeirri braut. Jeg get vel skilið það, og tel það að mörgu leyti rjettmætt, að bankarnir vilji hlutast til um útlendan gjaldeyri. Þeir verða að leggja hann út og sjálfsagt að þeir geri einhverjar ráðstafanir til þess að ná í hann. Jeg álít ekki og þekki ekki til, að stórgróði eigi sjer stað hjá bönkunum á mismun við kaup og sölu á útlendum gjaldeyri.
Jeg skal taka það fram, eins og háttv. þm. mintist á, að jeg veit ekki til, að misfellur hafi átt sjer stað í þessu efni, en skal geta þess, að jeg mun leita mjer upplýsinga þar að lútandi.