04.04.1922
Neðri deild: 40. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 666 í B-deild Alþingistíðinda. (664)
78. mál, eftirlit með skipum og bátum
Frsm. (Jón Baldvinsson):
Laust eftir síðustu mánaðamót barst sjútvn. frv. þetta. Það er samið — eins og stendur í greinargerð þess — af siglinga- og vjelfróðum mönnum, sem til þess voru valdir. Þeir munu upphaflega hafa verið skipaðir til þess að semja tilskipun þá, sem um ræðir í 10. og 11. gr. laga nr. 29, frá 1912, en þeir munu hafa komist að þeirri niðurstöðu, að rjettara væri að breyta lögunum sjálfum, og snúist að því.
Hjer er þó ekki um miklar efnisbreytingar að ræða. Aðaltilgangurinn með þessu er að gera skipaskoðanirnar tryggari og öruggari, enda er nú margt breytt frá því, sem var þegar lögin frá 1912 voru sett.
Í núgildandi lögum er það lögreglustjóri, sem hefir þetta eftirlit, en með frv. á að færa þetta undir atvinnumálaráðuneytið, sem hefir yfirumsjónina. Og í frv. er landinu skift í skoðunarumdæmi, en stjórnarráðið ákveður þau.
Önnur breyting er það, að lögunum er ætlað að ná til smærri skipa og báta, fjórróinna eða stærri. Í aths. frv. er þess getið, að þetta sje gert vegna breytingar á lögum um slysatrygging sjómanna, sem samþykt var á þinginu í fyrra. En einnig er í frv. heimild til, að skoðun skuli fram fara á enn smærri bátum og ferjum.
Annars sje jeg ekki ástæðu til þess að orðlengja frekar um þetta. Athugasemdir frv. eru allítarlegar, og vísa jeg til þeirra. Og með samanburði við lögin frá 1912 vona jeg, að háttv. þdm. sjái, að breytingarnar eru í fullu samræmi við þær kröfur, sem nú eru gerðar í þessu efni, og allar ótvírætt til bóta. Vænti jeg svo, að frv. fái að ganga gegnum háttv. deild.