24.03.1922
Efri deild: 28. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 680 í B-deild Alþingistíðinda. (701)
27. mál, skipting Húnavatnssýslna í tvö kjördæmi
Guðmundur Ólafsson:
Jeg stend aðeins upp til að mótmæla þeim ummælum háttv. þm. Snæf. (H. St.), að jeg þyrði ekki að mæla eindregið með frv. Það var rangt, því að jeg hefi ávalt mælt með því og geri það enn, þótt jeg hinsvegar vildi skýra rjett frá undirbúningi þessa máls heima í hjeraði.