20.03.1922
Neðri deild: 27. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 56 í B-deild Alþingistíðinda. (74)

1. mál, fjárlög 1923

Frsm. (Bjarni Jónsson):

Fyrir hönd nefndarinnar vil jeg lýsa yfir því, að hún ætlar sjer ekki að ræða frv. við þessa umr. Það hefir verið siður að nota þessa umr. til eldhúsverka, og vill nefndin ekki bregða þeim vana þó að hún ætli sjer ekki að inna þau verk af hendi. Sú stjórn, sem með völdin hefir farið undanfarið, er nú nýskilin við, og vill nefndin aðhyllast regluna: nil de mortuis nisi bene. En nýja stjórnin er svo ung, að henni hefir ekki unnist tími til glappaskota, og sje jeg því ekki ástæðu til að víta hana að óþörfu. Fyrir nefndarinnar hönd hefi jeg því ekkert að segja við þessa umr.