03.04.1922
Neðri deild: 39. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 711 í B-deild Alþingistíðinda. (810)

71. mál, kennsla heyrnar og málleysingja

Magnús Guðmundsson:

Jeg fæ ekki skilið orð hv. frsm. nú öðruvísi en svo, að það þurfi bæði að stækka skólann og auka við kenslukrafta strax þegar breytingin er komin á, en hinsvegar sje það á valdi stjórnarinnar að setja ákvæði um þetta með reglugerð, og því geti stjórnin frestað. En þá finst mjer, að alveg eins geti beðið að samþykkja lögin að þessu sinni.