11.04.1922
Efri deild: 42. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 719 í B-deild Alþingistíðinda. (843)

55. mál, sætýndir menn

Frsm. (Jóhannes Jóhannesson):

Jeg er alveg samdóma hæstv. forsætisráðherra um það, að rannsókn og undirbúningur þessa máls hefði átt að vera hjá stjórninni. En þó svo sje ekki, og þar sem talsvert brýn þörf er á frv., þá álít jeg ekki mjög varhugavert að samþykkja það til bráðabirgða. Svo ætti stjórnin að ganga gegnum frv. á eftir og bæta inn í það því, sem á vantar um eftirlátna muni horfinna manna. Þetta frv. nær aðeins til þeirra, sem farist hafa af einhverjum ákveðnum slysum, sem kunnugt er um, að orðið hafi.

Jeg hefði helst óskað, að þessu máli hefði verið vísað til stjórnarinnar, en jeg veit, að lífsábyrgðarfjelögin vilja ógjarna greiða lífsábyrgð sætýndra manna, og álít því hættulaust þó frv. fái fram að ganga.