13.03.1922
Efri deild: 19. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 727 í B-deild Alþingistíðinda. (858)

57. mál, sveitarstjórnarlög

Björn Kristjánsson:

Jeg verð að segja það, að jeg kann því illa, ef frv. verður drepið, þar sem mikill hluti deildarinnar er því meðmæltur. Það ætti ekki að skaða eða tefja að neinu leyti fyrir endurskoðun sveitarstjórnarlaganna, þó að einu einstöku atriði sem þessu væri breytt til batnaðar.

Á þingi 1913 komu fram samskonar andmæli, er milliþinganefndin var að undirbúa breytingar á sveitarstjórnarlögunum, en andmælin voru ekki tekin til greina. Það er talað um það að skora á stjórnina að koma fram með endurskoðuð og breytt sveitarstjórnarlög; það hefir áður verið gert og engan árangur haft. Og er jeg sannfærður um það, að það á langt í land, enda er það margra ára verk og vandaverk mikið.

Hjer þarf að leita upplýsinga hjá hverri hreppsnefnd og fá umkvartanir sem víðast frá og vinna svo úr öllum þeim gögnum. Jeg óska því, að háttv. deild samþykki þetta frv. með þeirri sannfæringu, að það sje til bóta og tefji að engu leyti fyrir algerðri endurskoðun og breytingu á sveitarstjórnarlögunum.