13.03.1922
Efri deild: 19. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 728 í B-deild Alþingistíðinda. (860)

57. mál, sveitarstjórnarlög

Sigurður Jónsson:

Mjer er ekki ljóst, að hjer komi neitt í bága hvað við annað í frv., en ef það gengur til 2. umr., má auðvitað athuga það nánar. Jeg get ekki aðhylst dagskrána, þar sem mjer finst það ætti að vera grundvallarregla löggjafanna, og raunar hvers einstaks manns, að bæta úr því misrjetti, sem vitanlega á sjer stað, svo fljótt, sem kostur er á, og það engu síður, þó svo standi á, að misrjettið snerti ekki sjerlega marga menn. Og af því að jeg fæ ekki betur skilið en að meiri hluti háttv. deildar álíti þörf á þessari breytingu, sem hjer ræðir um, þá finst mjer rjett að koma henni á fyr en seinna.