13.03.1922
Efri deild: 19. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 728 í B-deild Alþingistíðinda. (861)
57. mál, sveitarstjórnarlög
Frsm. (Guðmundur Ólafsson):
Aðeins stutt athugasemd. Jeg get ekki fundið galla þá, sem háttv. þm. Seyðf. (Jóh. Jóh.) var að benda á, að væru á frv. Jeg skal játa það, að jeg hefi máske ekki athugað frv. nægilega vel, og lít þar að auki á það sem leikmaður en ekki lærður lögfræðingur, eins og háttv. deild getur skilið.