10.04.1922
Neðri deild: 45. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 737 í B-deild Alþingistíðinda. (880)

57. mál, sveitarstjórnarlög

Hákon Kristófersson:

Eins og hv. frsm. tók fram á jeg brtt. á þskj. 221. Mintist hann á gang málsins í Ed. og taldi að deildin hefði gengið inn á það til samkomulags að hafa frv. eins og það er nú. En jeg segi það ekki út í bláinn, að háttv. Ed. mun ganga að frv. eins fyrir það, þótt mín till. verði samþykt.

Brtt. mín gengur út á það að núgildandi lög standi að því leyti óbreytt, sem þau eiga við fjörð eða flóa. Hefði jeg kosið að hafa brtt. mína miklu víðtækari, en jeg treystist ekki til þess sökum þess, að jeg þekki orðið reiptogið hjá háttv. þm. um það, að gera hreppsnefndum mögulegt að ná peningum úr vasa utanhreppsmanna, svo framarlega sem þeir hafa notið nokkurra þæginda í hreppi þeirra.

Brtt. mín gengur því aðeins út á það, að þar sem sýslufjelög liggja að flóum eða fjörðum, þar sjeu ákvæðin eins og þau hafa verið í gildandi lögum. Hygg jeg það miklu hagkvæmara og rjettara. Hefi jeg hjer sjerstaklega Vesturland fyrir augum, svo og Faxaflóa.

En þegar svo er háttað, að örmjór fjörður liggur á sýslutakmörkunum, eins og á sjer stað um Ísafjarðar- og Barðastrandarsýslu, og veiðistöðvar eru beggja megin fjarðarins, þá getur oft staðið svo á, að í þetta skifti sje hægara að nota þessa verstöðina og í hitt skiftið verstöðina hinumegin við fjörðinn. Þannig er t. d. háttað í Barðastrandarsýslu. Bílddælingar eiga verbúð o. fl. í Auðkúluhreppi norðanvert við Arnarfjörð. Það sjer hver heilsýnn maður, hve ranglátt það væri og er í slíkum tilfellum, að menn skuli verða útsvarsskyldir fyrir skamma dvöl í sínum eigin húsum, eða þó leigð væru af öðrum móti fullu endurgjaldi. Lít jeg yfirleitt svo á, að þegar einhver útgerðarmaður borgar að fullu öll þau fríðindi, sem hann og starfsmenn hans njóta í sveit þeirri, sem þeir hafa bækistöð sína í, þá hafi sú sveit eða hreppur að fullu hlotið það, sem krafist verður, ef sannsýni fær að ráða, og að næsta ósanngjarnt sje að leggja á þennan mann aukaútsvar í viðbót. Eru leigusalar ekki yfirleitt ódýrseldari en svo, að þeir mega jafnaðarlega heita vel haldnir af þeim viðskiftum; því dæmi munu til þess, að hin ýmsu fríðindi, sem aðkomumenn njóta hjá slíkum mönnum, eru seld við okurverði.

Eftir orðum háttv. frsm. (Þorl. J.) að dæma, virðist mjer auðsætt, að nefndin geti ekki verið á sama máli og jeg í þessu efni. Finst mjer yfirleitt kenna sorglega mikils keims af þessari tilhneigingu hvers sveitarfjelags að skara eld að sinni köku, eins og stundum hjá einstöku háttv. þm. að skara eld að köku kjördæmis síns, og finst mjer því ekki ástæða til að ala á slíkum hugsunarhætti eða styrkja hann með slíkum lagaákvæðum sem þessum.

Eftir núgildandi lögum á almenn sveitarútsvarsálagning að fara fram í október ár hvert. Svo er fyrir mælt, að útsvar skuli lagt á eftir efnum og ástæðum. En samkvæmt þessum ákvæðum gæti þessi álagning farið fram í júlí eða ágústmánuði, eða ef til vill fyr.

Nú er svo fyrir mælt, að formaður greiði útsvar fyrir sig og háseta sína áður en hann fer úr veiðistöð, og renna menn þá blint í sjóinn um það, þegar á hann er lagt, hver hin raunverulega þörf sveitarfjelagsins verður á því ári, eða hvernig efnum og ástæðum manna, sem útsvörin eru lögð á verður háttað um mánaðamót október og nóvember. Yrði því ókleift að leggja hlutfallslega rjett á þennan mann við aðra hreppsbúa, en ekki mun þar af veita, að rjettlátt sje eins og er, þótt löggjöfin geri ekki tilraunir í því að gera það rjettlæti torveldara.

En það virðist við raman reip að draga við háttv. deild, að fá hana til að sjá þetta í því ljósi, sem sæmilegast væri heiðarlegum og óhlutdrægum mönnum. Lítur út fyrir, að það ætli að reynast nú sem oftar, að hún sje steinblind á því auganu, sem veit að mannúð og rjettlæti, og er þó ilt að vita. Er yfirleitt slíkt ósamræmi víða í þessum lögum og sú fljótaskrift á frv., að jeg tel með engu móti rjett að samþykkja það eins og það nú liggur fyrir. Til dæmis veit jeg um marga menn, sem hafa notið tekna hjer í Reykjavík, en ekkert útsvar verið lagt á. Tel jeg það heldur ekki neitt illa farið, þótt höfuðborg landsins gangi ekki á undan í því að fara ofan í vasa efnalítilla manna eftir fje þeirra, þótt dvalið hafi nokkrar vikur við atvinnu. er bæjarfjelagið hefir jafnframt haft gott af, þótt aldrei nema einhver lagastafur heimilaði það. En ekki mun það vera meining nefndarinnar að breyta þessu. Þá er eftir lögunum gerður sá munur á háseta á róðrarbát og háseta á þilskipi, að hinn fyrnefndi á að borga útsvar, en hinn síðarnefndi ekki. Það er nú auðsætt, að ef heilbrigt rjettlæti á að komast á, þá verður að laga þetta. Verð jeg að halda því fram, að háttv. nefnd getur varla verið það neitt áhugamál, að rjettlætið verði hjer ofan á, ef hún gengur ekki að brtt. mínum. Er jeg forviða á, að hún skuli ekki vera búin að gera þetta.

Nú stundar einhver maður útræði, og fær hann þá ekki fiskinn í bygðarlagi því, sem hann dvelur í eða setur hann á land í, heldur fyrir utan það. Ef hann nú borgar það, sem það kostar að setja hann á land þar og verka, þá er það nóg. Hann á að rjettu lagi ekki að borga þar meira. Það bólar hjer á þessari gömlu tilhneigingu hreppanna, að ná sem allra mestu af þessum mönnum.

Þá er hjer ýmislegt fleira, sem jeg myndi óska, að ekki slæddist með í lögin. Það eru meðal annars ýms svo smásmuguleg ákvæði, að mig furðar á því, að menn skuli geta lagt sig niður við að semja slíkt. Eftir einu þeirra má t. d. leggja útsvar á mann, sem einn góðan veðurdag fer með veiðistöng sína upp í sveit til að veiða lax í einn sólarhring. Efast jeg ekki um, að hreppsmenn myndu nota sjer þetta.

Annars snúa ákvæði sem þetta frekar að öðrum háttv. þm. en mjer, ef gera skal ráð fyrir, að hver tali sjerstaklega máli síns kjördæmis, sem líklega má nú, og skal jeg ekki fara frekar út í þetta. Þó get jeg ekki stilt mig um að taka það fram, að jeg tel brtt. á þskj. 225 hafa mikinn rjett á sjer, þótt hún kunni máske að koma nokkuð hart niður sumstaðar. Hún hefir í aðra röndina miklar rjettarbætur í för með sjer, og álít jeg því, að ekki beri að útiloka hana. Annars teldi jeg best, að nefndin stingi frv. undir stól nú í bili með rökstuddri dagskrá. Það er svo margt í því, sem menn eru og verða óánægðir með. Er jeg hissa á því, að háttv. deild skuli ekki sjá það, að ekkert þýðir að vera að klastra við þessi lög, því jafnan fer ný bót illa á útslitnu fati. Væri rjettara að vísa málinu til stjórnarinnar og fela henni að koma fram með breytingar á sveitarstjórnarlögunum í heild og leggja þær fyrir næsta þing.

Jeg vil svo að lokum taka það fram, ef einhver hefir ekki áttað sig á því, að brtt. mín við þskj. 102 er þegar komin inn í frv. Það var gert í því skyni að spara prentun, og vona jeg, að háttv. deildarmenn sjái, að brtt. rekur sig ekki á efni frv.