12.04.1922
Neðri deild: 47. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 754 í B-deild Alþingistíðinda. (894)

57. mál, sveitarstjórnarlög

Frsm. (Þorleifur Jónsson):

Það er ekki útlit fyrir, að greitt verði að koma lögun á þetta mál hvað útsvarsrjett á laxveiði snertir, því að jeg sje, að enn er komin fram sama till. og um daginn frá hv. 2. þm. Reykv. (J. B.).

Þessi till. sýnist í fljótu bragði vera mjög meinlaus, og sumum gæti enda virst, að hún bætti nokkuð úr skák fyrir Mosfellshreppi eða öðrum, sem líkt er ástatt. En það getur varla verið tilgangurinn, því að þá mundu þeir ekki svo ólmir að fella hið nýja ákvæði, að laxveiðin væri útsvarsskyld, hvort sem hún er rekin til atvinnu eða aðeins til skemtunar og á hvern hátt sem veiðin er stunduð. En þótt brtt. þeirra komist að, sje jeg ekki betur en að laxveiði sú, sem mál hafa risið út af og dómar fallið um, sje eftir dómsástæðunum jafnrjettlaus til álags eins og áður.

Dómarnir miða við, að laxveiðin hafi ekki verið rekin sem atvinna, heldur til skemtunar, og því ekki útsvarsbær.

En af því að ekki mun öllum háttv. deildarmönnum ljóst, um hvað dómarnir fjalla, skal jeg skýra í fám orðum frá því.

Búsettur maður hjer í Reykjavík hefir haft á leigu jörðina Lambhaga í Mosfellshreppi. Í dómsúrskurði frá 22. des. f. á. segir svo um leiguliðanotin:

„Afnotunum hefir verið þannig varið, að requisitus hefir haft bú á jörðinni og ráðsmann fyrir búinu, en stundaði þar sjálfur laxveiði á sumrin sjer til skemtunar“.

Á ráðsmanninn var lagt útsvar að því er skilst fyrir jarðarafnotin sjálf, að undanskildum laxveiðinotunum.

En svo lagði Mosfellshreppur 30 kr. á sjálfan leigusala jarðarinnar, þennan búsetta Reykvíking, fyrir laxveiðinotin, sem hann skildi alveg frá öðrum leiguliðanotum, og út af því reis málið. Og dómsúrskurðurinn segir, að ekki sje hægt að leggja útsvar á laxveiðinot utanhreppsmanna, nema laxveiðin sje rekin í atvinnuskyni. En hlutaðeigandi hafi aðeins veitt lax á stöng sjer til skemtunar, og verði því ekki álitið, að það baki honum útsvarsskyldu.

Þannig er leiguliði heillar jarðar, sem laxveiði hefir, fríaður við útsvar af laxveiði, af því að hann veiði á stöng sjer til skemtunar.

Það myndi í þessu tilfelli engin breyting verða, þótt brtt. þessi kæmist að. Laxveiðina undanskilur jarðarleigjandi handa sjálfum sjer, heldur áfram að veiða á stöng sjer til skemtunar og þarf ekkert útsvar að greiða af veiðihlunnindunum. Það er ekki 1, heldur að minst kosti 2 mál, sem risið hafa út af þessum veiðihlunnindum í Mosfellssveit.

Annar maður, búsettur hjer í Reykjavík, hefir leigt veiðirjett í Úlfarsá fyrir landi 7 jarða, og í skjali hreppsnefndar Mosfellshrepps 21. febr. 1918 stendur, að fyrir landi sumra þessara jarða hafi veiðin í ánni frá ómunatíð verið talin til mikilla hlunninda og stunduð með mjög góðum árangri. Ennfremur segir hreppsnefndin:

„Víst er um það, að eigandi einnar þeirrar jarðar mundi fúslega borga 100 krónum hærra útsvar, ef hann ætti og mætti nota sjer laxveiðirjettinn fyrir sínu landi einu saman, og er það ekki nema lítill hluti af allri veiðinni.“

Árið 1917 lagði hreppsnefndin á umræddan árleigjanda 100 króna útsvar. Hann neitaði að greiða útsvarið, taldi laxveiðina ekki arðsamt fyrirtæki, heldur aðeins til gamans, og fógetarjettur í Reykjavík 31. júlí 1920 úrskurðar, að nefnd laxveiði sje eftir framkomnum upplýsingum ekki rekin í atvinnuskyni, heldur sem gaman og leigjanda til skemtunar. Þarna verður hreppurinn að hafa það sem annað hundsbit, að utanhreppsmaður hefir fengið eignar- eða umráðarjett yfir veiðihlunnindum, sem 7 jarðir hafa veiðirjett í, og ekki nóg með það, að veiðirjetturinn er horfinn úr hreppnum, heldur missir hreppurinn rjett til þess að leggja útsvar á þann mann, sem hefir öll þessi hlunnindi, af því að hann veiðir sjer til gamans. Nei, hann hefir ekki atvinnu af því, það er bara skemtunin.

Finst mönnum nú ekki þörf á því, að löggjöfin taka hjer í taumana og rjetti veslings hreppunum hjálparhönd og öðrum slíkum, sem búið er að rýja af hlunnindin? Menn halda kannske, að það muni bæta eitthvað úr skák fyrir Mofellshreppi þetta orðalag, sem á brtt. er, því að þeir leggja til, að fyrir laxveiðinot komi tekjur af laxveiði, hvort sem það eru veiðitekjur eða leigutekjur. En það er nú öðru nær. Þá væri betra, að hið gamla stæði, „laxveiðinot“, því að það er víst hægt að koma því svo fyrir, að ekki verði um miklar tekjur að ræða á pappírnum, hvað góð sem veiðin væri. Í skjölum þeim, sem jeg hefi undir höndum, sýnir leigjandi Korpúlfsstaðaár fram á, að hann hafi ekki haft nokkrar tekjur, heldur skaða af ánni, t. d. segist hann hafa orðið að greiða manni, sem hann hafði til að vakta ána, 300 kr. í tvo mánuði, og svo leiguna. Hann fær út yfir 500 kr. tap. Já, auðvitað, veiðin stunduð til gamans og með stórtapi! Þetta getur nú alt saman verið rjett, en þá hugsa jeg, að hreppurinn hafi hálflítið upp úr tekjunum af þeirri laxveiði, hvort sem þær heita veiðitekjur eða leigutekjur. Jeg vil biðja menn vel að athuga þetta og greiða ekki atkvæði með brtt. Annars finst mjer leika nokkur vafi á, hvort hún getur komist að hjer, því að búið er að fella hana hjer í deildinni. Hún var að vísu samþykt hjer sjálf, en síðan feld í sambandi við aðra till. En forseta er að skera úr um þetta.