08.04.1922
Neðri deild: 44. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 779 í B-deild Alþingistíðinda. (924)

68. mál, fræðsla barna

Hákon Kristófersson:

Jeg býst við að háttv. 4. þm. Reykv. (M. J.) hafi meint til mín sumt af því, sem hann sagði í ræðu sinni, af því að jeg mælti á móti líkri brtt., sem kom fram við 2. umr. En jeg verð að undirstrika það, sem háttv. þm. Borgfirðinga sagði um málið.

Það er ekki undarlegt, þótt menn standi upp til þess að verja stjett sína, en þó því aðeins, að á hana sje ráðist. En mig furðar á, að háttv. 4. þm. Reykvíkinga skuli rísa upp til að berjast fyrir því, að prestarnir skuli fá ferðastyrk til að ferðast um innan sinnar eigin sveitar.

Háttv. sami þm. vildi meta starfsþol prestanna og sjá um, að þeir yrðu ekki ofhlaðnir störfum; en jeg hygg, að engum detti í hug að prestar yfirleitt hafi svo mikið að gera, að ekki megi bæta dálitlum störfum við þá.

Jeg skal í þessu sambandi benda á aðra starfsmenn, hreppsnefndirnar. Þær hafa engan málsvara, þótt þær vinni kauplaust, og það oft mikið starf. En þegar embættismaður á hlut að máli, þykir ósvinna, að hann hreyfi sig minstu vitund án þess að fá fulla borgun fyrir, auk þess, sem hann fær fullkomin árslaun úr ríkissjóði.

Hvað snertir það, sem sami háttv. þm. talaði um, að sami prestur hefði fleiri sóknir, þá ímynda jeg mjer, að barnaprófunum yrði hagað þannig, að presturinn gæti gegnt þeim í sömu ferðinni og hann færi til annara embættisverka.

Jeg álít það vera sóma þjóðarinnar að fara vel með prestastjettina, af því að hún er ein af gagnlegustu stjettum landsins. En það er ekki rjett að borga mönnum með fullum embættislaunum ferðakostnað innan síns eigin hjeraðs. Það er því alls ekki að fara illa með prestastjettina, þó brtt. sú, sem hjer er fram komin, nái ekki fram að ganga.

Þá sagði sami háttv. þm., að það væri ófyrirsynju verið að vekja upp gömlu tilskipunina, sem nú væri dottin úr sögunni. En mjer finst það alls eigi vera að ófyrirsynju, því sumir prestar, þótt hinir mestu sæmdarmenn sjeu, hafa algerlega lagt niður húsvitjanir. Finst mjer því alls ekki úr vegi að rifja það upp fyrir þeim.