11.04.1922
Neðri deild: 46. fundur, 34. löggjafarþing.
Sjá dálk 793 í B-deild Alþingistíðinda. (940)

68. mál, fræðsla barna

Lárus Helgason:

Jeg sje ekki, að það sje neitt ljótt, þótt sveitunum sje gefin ofurlítil hvöt til þess að reisa sæmileg skólahús, í stað þess að kúldra börnunum inn í þröngar stofur á heimilunum, sem alls ekki eru hæfar til að kenna í.